Nemenda- og foreldraviðtöl
Nemendaviðtöl
Nemendaviðtöl eru formlega tvisvar á hverju skólaári, en geta orðið fleiri telji umsjónarkennari og foreldrar þörf á slíku. Viðtölin, sem fara fram í einrúmi eru tekin skömmu fyrir foreldraviðtölin og eru að jafnaði 10 – 20 mínútur að lengd.
Í nemendaviðtölum er rætt um líðan nemenda og námsframvindu eða annað sem nemendum liggur á hjarta. Reynt er að ígrunda námslega stöðu og ýta undir námsvitund nemanda. Farið er yfir hvernig gangi í námi og hvernig hugsanlega best sé að taka á náminu næstu mánuðina. Stuðst er við gátlista um nemendaviðtöl. Megintilgangur nemendaviðtala í Auðarskóla er:
Sjá nánar gátlista fyrir nemendaviðtöl hér að neðan:
|
Foreldraviðtöl
Foreldraviðtöl eru tvisvar á ári og fara þau fram ásamt barni og umsjónarkennara. Enginn sérstök tímalengd er á viðtölunum en þau geta verið frá 20 mínútum upp í klukkustund eftir efni og aðstæðum.
Foreldraviðtölin eru mikilvægur hlekkur í leiðsagnarmati og þar fer fram umræða um námsframvindu, líðan nemanda og samvinnu heimilis og skóla. Leitast er við að ræða námsreynslu nemandans í heild sinni og að í umræðum sé nemandinn sjálfur virkur í viðtalinu. Eftirfarandi viðmið hafa verið sett fyrir foreldraviðtölin:
Sjá nánar gátlista fyrir foreldraviðtöl hér að neðan:
|