Hæfniviðmið í samfélagsgreinum
Hæfniviðmið samfélagsgreina tengjast grunnþáttum menntunar og er skipt í þrjá flokka, þ.e. reynsluheim, hugarheim og félagsheim. Enn fremur leitast þau við að mæta áhersluþáttum grunnskólalaga og aðalnámskrár. Hvert hæfniviðmið byggist á að minnsta kosti einum efnisþætti og koma sumir þeirra ítrekað fyrir. Efnisþættir hæfniviðmiðanna skiptast þannig:
REYNSLUHEIMUR
|
HUGARHEIMUR
|
FÉLAGSHEIMUR
|
REYNSLUHEIMUR Umhverfi, samfélag, saga, menning við lok 7. bekkjar. |
Að nemandi geti:
• sýnt fram á skilning á mikilvægum gildum, svo sem kærleika, mannhelgi, félagslegu réttlæti. umhyggju fyrir öðrum mönnum og öllu lífi, • skýrt tengsl samfélags, náttúru, trúar og lífsviðhorfa fyrr og nú, • fylgt ferli orsaka og afleiðinga af gerðum manna og bent á leiðir til úrbóta, • gert grein fyrir einkennum og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu og sögu landsins, breytilegrar menningar, trúar og lífsviðhorfa, • greint samhengi heimabyggðar við umhverfi, sögu, menningu og félagsstarf, • aflað sér, metið og hagnýtt upplýsingar um menningar og samfélagsmálefni í margvíslegum gögnum og miðlum. • notað mikilvæg hugtök til að fjalla um menningar- og samfélagsmálefni, • lýst náttúruferlum. sem hafa áhrif á land og gróður, • áttað sig á hvernig loftslag og gróðurfar hafa áhrif á búsetu og lífsskilyrði, • lýst með dæmum áhrifum tækni og mannlegra athafna á samfélag og umhverfi, • gert sér grein fyrir nýtingu og vernd auðlinda og umhverfis, hvernig hver einstaklingur getur lagt sitt af mörkum til verndar, • notað kort og gröf til að afla sér upplýsinga, • rætt á upplýstan hátt um tímabil, atburði og persónur, sem vísað er til í þjóðfélagsumræðu, • metið heimildir og ólík sjónarhorn í umfjöllun um sögu og samtíð, • velt fyrir sér ýmsum þáttum sem sagan hefur mótast af, svo sem umhverfi, samfélagsskipulagi og þjóðfélagshreyfingum, • lýst einkennum og þróun íslensks þjóðfélags og tekið dæmi um mikilvæga áhrifaþætti, • dregið upp mynd af afmörkuðum efnisþáttum stórrar og smárrar sögu, nálægrar eða fjarlægrar, • greint hvernig sagan birtist í textum og munum, hefðum og minningum, • lýst margbreytileika helstu trúarbragða og lífsviðhorfa og áhrifum þeirra á líf fólks, • rætt viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og sett í samhengi við atburði daglegs lífs, • gert grein fyrir völdum frásögnum, hefðum, hátíðum, siðum og táknum í kristni og nokkrum helstu trúarbrögðum heims, • borið saman valin trúar- og lífsviðhorf, • nefnt dæmi um áhrif helgirita helstu trúarbragða á menningu og samfélög, • borið kennsl á trúarlegar vísanir og tjáningu í listum og bókmenntum, • gert sér grein fyrir margbreytileika fjölskyldna og margvíslegum hlutverkum innan þeirra, • lýst nokkrum einkennum lýðræðislegra samfélagshátta, • gert grein fyrir hlutverki nokkurra helstu stofnana samfélagsins, • gert grein fyrir hugmyndum um samhjálp og velferð og framkvæmd hennar í samfélaginu, • lýst með dæmum hvernig samfélagsgerð tengist lífi einstaklinga, • sýnt fram á skilning á kostnaði eigin neyslu og sé læs á þau áhrif sem ýmis tilboð og auglýsingar hafa á eigin neyslu og á samfélagið, • séð gildi slysavarna og viðbragða við slysum í heimahúsum, nærsamfélagi og náttúrunni. |
HUGARHEIMUR Sjálfsmynd: Hæfni nemanda til að átta sig á sjálfum sér og öðrum við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lýst sjálfum sér og tekið dæmi um þætti sem hafa áhrif á sjálfsmynd hans, svo sem úr nærsamfélagi, umhverfi og menningu, • lýst með dæmum gildi jákvæðra lífsviðhorfa, dygða og gildismats fyrir eigin sjálfsvitund, • áttað sig á ólíkum kynhlutverkum á nokkrum sviðum og hvernig þau mótast og breytast, • gert sér grein fyrir eigin styrkleikum og veikleikum, • vegið og metið áhrif fyrirmynda og staðalmynda, hvernig vinna megi með þau á sjálfstæðan og uppbyggjandi hátt, • lýst margvíslegum tilfinningum og áttað sig á, áhrifum þeirra á hugsun og hegðun, • tileinkað sér heilbrigða og holla lífshætti, • metið jákvæð og neikvæð áhrif ýmissa áreita í umhverfinu á líf hans og tekið gagnrýna afstöðu til þeirra, • gert sér grein fyrir jafngildi sínu og annarra manna og rætt þýðingu þess, • sett sig í spor fólks með ólíkan bakgrunn á völdum stöðum og tímum, • sett sér markmið og gert áætlanir við fjölbreytt viðfangsefni. |
FÉLAGSHEIMUR Samskipti: Hæfni nemanda til að mynda og þróa tengsl sín við aðra við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið þátt í lýðræðislegu samstarfi og samræðu, • borið kennsl á ólíkan bakgrunn fólks og virt frelsi þess til mismunandi trúar, lífsgilda, skoðana og lífshátta, • metið og brugðist við ólíkum skoðunum og upplýsingum á fordómalausan hátt, • rökrætt um ólík málefni af samfélagslegum og siðferðilegum toga, • tekið þátt í samræðu um stöðu sína sem þátttakandi í samfélaginu, réttindi og skyldur, sýnt ábyrgð í samskiptum og átti sig á réttindum sínum samkvæmt alþjóðasáttmálum, • tjáð þekkingu sína og viðhorf með fjölbreyttum hætti, einn sér og í samstarfi við aðra, • nefnt dæmi um gildi jafnréttis og mannréttinda í samfélaginu og rætt áhrif staðalímynda, • sýnt sanngirni, sjálfstraust og virðingu í samskiptum og samvinnu við aðra, • rætt um eigin athafnir og afleiðingar þeirra, • rætt reglur í samskiptum fólks og tekið þátt í að setja sameiginlegar leikreglur með öðrum, • tekið þátt í samfélagsmálum á ábyrgan hátt, • sýnt samferðafólki sínu tillitssemi og umhyggju. |