Hæfniviðmið í skólaíþróttum
Líkamsvitund, leikni og afkastageta við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert æfingar sem reyna á þol, • gert hreyfingar sem reyna á stöðujafnvægi og hreyfijafnvægi, • sýnt einfaldar hreyfingar sem reyna á lipurð og samhæfingu, • sýnt nokkra boltafærni og tekið þátt í nokkrum mismunandi boltaleikjum, • tekið þátt í stöðluðum prófum, • kafað, velt sér af kvið á bak og öfugt og tekið þátt í leikjum í vatni. Synt sporðtök, bringusund, skólabaksund, baksund og skriðsund með eða án hjálpartækja stuttar vegalengdir. |
Félagslegir þættir
við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• unnið með þær tilfinningar sem fylgja því að vinna og tapa í leikjum, • skilið skipulagshugtök í skólaíþróttum og farið eftir leikreglum, • gert sér grein fyrir eigin líkamsvitund |
Heilsa og efling þekkingar við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skýrt mikilvægi hreinlætis í tengslum við íþróttir og sundiðkun, • útskýrt líkamlegan mun á kynjum, • notað einföld hugtök sem tengjast sundiðkun, íþróttum og líkamlegri áreynslu, • þekkt heiti helstu líkamshluta, magn- og afstöðuhugtaka og hreyfinga, • sett sér einföld þjálfunarmarkmið í íþróttum og heilsurækt og unnið að þeim, • sótt og unnið úr einföldum upplýsingum varðandi íþróttir, • gert einfaldar mælingar og talningar í leikjum, • tekið þátt í gömlum íslenskum leikjum og æfingum, • tekið þátt í útivist og búið sig til útiveru með tilliti til veðurs. Ratað um skólahverfi sitt og þekkt göngu- og hjólaleiðir nærumhverfis. |
Öryggis- og skipulagsreglur
við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• farið eftir öryggis-, skipulags og umgengnisreglum sundstaða og íþróttahúsa og brugðist við óhöppum. |