Hæfniviðmið í verkgreinum á miðstigi
Heimilisfræði við lok 7. bekkjar |
Matur og lífshættir
Að nemandi geti: • tjáð sig um heilbrigða lífshætti og tengsl þeirra við heilsufar, • tjáð sig um aðalatriði næringarfræðinnar, • farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi, • gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald og sé meðvitaður um neytendavernd. Matur og vinnubrögð Að nemandi geti: • matreitt einfaldar og hollar máltíðir og nýtt hráefnið sem best, • unnið sjálfstætt eftir uppskriftum og notað til þess algengustu mæli- og eldhúsáhöld, • greint frá helstu orsökum slysa á heimilum og hvernig má koma í veg fyrir þau, • nýtt margvíslega miðla til að afla upplýsinga er varða matreiðslu, næringarfræði og meðferð matvæla. Matur og umhverfi Að nemandi geti: • tengt viðfangsefni heimilisfræðinnar við jafnrétti og sjálfbærni og áttað sig á uppruna helstu matvæla, • skilið og rætt mismunandi umbúðarmerkingar, metið útlit og gæði matvæla og útskýrt hvernig á að geyma þau. Matur og menning Að nemandi geti: • tjáð sig um ólíka siði og venjur, og þjóðlegar íslenskar hefðir í matargerð. |
Hönnun og smíði við lok 7. bekkjar |
Handverk
Að nemandi geti: • valið og notað á réttan hátt helstu verkfæri og mælitæki, • gert grein fyrir uppruna og notagildi þess efniviðar sem notaður er í smíðastofunni. Hönnun og tækni Að nemandi geti: • útskýrt hugmyndir sínar með því að rissa upp málsetta vinnuteikningu, • lesið einfalda teikningu, smíðað eftir henni og unnið eftir hönnunarferli frá hugmynd að lokaafurð, • valið samsetningar og yfirborðsmeðferð sem hæfa verkefnum, • hannað og smíðað verkefni sem nýtir orkugjafa og lýst því hvaða virkniþættir eru að verki í ýmsum hlutum, • lýst hvernig tæknin birtist í nánasta umhverfi hans og almennt í samfélaginu, • greint þarfir í umhverfi sínu Umhverfi Að nemandi geti: • gert grein fyrir hvort efni séu hættuleg og hvernig hægt er að endurnýta og flokka efni sem fellur til í smíðastofunni, • gert við og endurnýjað eldri hluti og lengt þannig líftíma þeirra, • útskýrt réttar vinnustellingar og valið viðeigandi hlífðarbúnað. |
Textílmennt við lok 7. bekkjar |
Hanverk, aðferðir og tækni
Að nemandi geti: • beitt grunnaðferðum og áhöldum greinarinnar, • fjallað um efnisfræði og unnið úr fjölbreyttum textílefnum, • unnið með einföld snið og uppskriftir. Sköpun, hönnun og útfærsla Að nemandi geti: • þróað eigin hugmyndir í textílverk og unnið eftir ferli, • notað fjölbreyttar aðferðir við skreytingar textíla, • útskýrt hagnýtt og fagurfræðilegt gildi handverks og fjallað um fagurfræði í eigin verkum, • nýtt helstu miðla til að afla upplýsinga um textíla og textílvinnu. Menning og umhverfi Að nemandi geti: • fjallað um íslenskt hráefni í samhengi við sögu og sjálfbærni, • gert grein fyrir helstu eiginleikum náttúruefna og gerviefna, • sett textílvinnu og textílverk í samhengi við sögu, samfélag og listir, • gert grein fyrir endurnýtingu og efnisveitum. |