Námsframvinda í erlendum málum á efstastigi
Áætluð árleg námsframvinda í erlendum málum með markmiðum, námsefni, heimanámi og kennslutilhögun fyrir 8. - 10. námsár skólans
Veturinn 2019-2020
Uppfært í september 2020 |
E n s k a
Markmið: Nemendur tileinki sér þann orðaforða og málskilning sem kemur að notum í daglegu máli t.d., varðandi framhaldsnám og framtíðarstörf. Einnig geti þeir tileinkað sér orðaforða sem nýtist þeim við upplýsingaöflun af ýmsu tagi. Nemendur læri að nýta sér þau tæki sem þarf til tungumálanáms s.s. orðabækur & netmiðla. Námsefni: Kjörbók, tölvur og ítarefni frá kennurum. Kennslutilhögun: Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti eins og verklegar æfingar, samræður, sköpun, námsleikir, hópavinna, vangaveltur um boðskap kvikmynda og tölvur og upplýsingatækni. Eftir að nemendur hafa lokið við kjörbókina skrifa þeir ritgerð. Einnig verður unnið með framsögn og hlustun. Heimanám: Lesa fyrir bókmenntatíma og skrifa ritgerð. Óreglulegar sagnir. Ef nemendur halda ekki áætlun þurfa þeir að vinna upp heima. Námsmat: Þekkingarmat 50%. Símat 50% Kennsluáætlun og skiladaga er að finna inn á Mentor! D a n s k a Markmið: Nemendur tileinki sér þann orðaforða og málskilning sem kemur að notum í daglegu máli t.d., varðandi framhaldsnám og framtíðarstörf. Einnig geti þeir tileinkað sér orðaforða sem nýtist þeim við upplýsingaöflun af ýmsu tagi. Nemendur læri að nýta sér þau tæki sem þarf til tungumálanáms s.s. orðabækur & netmiðla. Námsefni: Tölvur og ítarefni frá kennurum. Kennslutilhögun: Lögð er áhersla á fjölbreytta kennsluhætti eins og verklegar æfingar, samræður, sköpun, námsleikir, hópavinna, vangaveltur um boðskap kvikmynda og tölvur og upplýsingatækni. Einnig verður unnið með framsögn og hlustun. Kennarar: Skjöldur og Guðrún Heimanám: Ef nemendur halda ekki áætlun þurfa þeir að vinna upp heima. Námsmat: Þekkingarmat 50%. Símat 50 %. Kennsluáætlun og skiladaga er að finna inn á Mentor! |