Námskrávefur grunnskóladeildar
Auðarskóli
  • Forsíða
  • Námsvísar
    • Viðmiðunarstundarskrá
    • Yngsta stig >
      • Íslenska (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.- 4. b.
      • Erlend tungumál (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1. - 4. b.
      • List- og verkgreinar (y) >
        • Megintilgangur
        • Listgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 1. - 4. b.
        • Verkgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 1.- 4. b.
      • Náttúrufræðigreinar (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.-4. b
      • Skólaíþróttir (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.- 4. árgangur
      • Samfélagsgreinar (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.- 4. árgangur
      • Stærðfræði (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.- 4. árgangur
      • Upplýsinga- og tæknimennt (y) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 1.- 4. árgangur
    • Miðstig >
      • Íslenska (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5. - 7. b
      • Erlend tungumál (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5. - 7. b.
      • List- og verkgreinar (m) >
        • Megintilgangur
        • Listgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 5. - 7. b.
        • Verkgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 5. - 7. b.
      • Náttúrufræðigreinar (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5.-7. b
      • Skólaíþróttir (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5.- 7. árgangur
      • Samfélagsgreinar (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5.- 7. árgangur
      • Stærðfræði (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5.- 7. b
      • Upplýsinga og tæknimennt (m) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 5.- 7. árgangur
    • Efsta stig >
      • Íslenska (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8. - 10. b
      • Erlend tungumál (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8. - 10. b.
      • List- og verkgreinar (e) >
        • Megintilgangur
        • Listgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 8. - 10. b.
        • Verkgreinar >
          • Hæfnimarkmið
          • Námsframvinda 8. - 10. b.
      • Náttúrufræði (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8.-10. b
      • Skólaíþróttir (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8.- 10. b
      • Samfélagsgreinar (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8.- 10. árgangur
      • Stærðfræði (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8.- 10. b
      • Upplýsinga- og tæknimennt (e) >
        • Megintilgangur
        • Hæfnimarkmið
        • Námsframvinda 8.- 10. árgangur
  • Námsmat
    • Leiðarljós í námsmati
    • Leiðsagnarmat
    • Nemenda- og foreldraviðtöl
  • Lykilhæfni
    • Lykilhæfni í Auðarskóla
    • Hæfniviðmið fyrir lykilhæfni
  • Grunnþættirnir
    • Læsi
    • Heilbrigði og velferð
    • Lýðræði og mannréttindi
    • Jafnrétti
    • Sjálfbærni
    • Sköpun

Hæfnimarkmið í stærðfræði á miðstigi






Að geta spurt og svarað með stærðfræði
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
tjáð sig um stærðfræði, útskýrt hugsun sína um hana fyrir öðrum, leitað lausna og sett stærðfræðileg viðfangsefni fram á fjölbreyttan hátt með því að beita skapandi hugsun, ígrundun, óformlegri og einfaldri, formlegri röksemdafærslu, fylgt og metið rökstuðning annarra.
• spurt, tjáð sig munnlega og skriflega um spurningar og svör sem eru einkennandi
  fyrir stærðfræði og hefur innsýn í hvers konar svara má vænta,
• leyst stærðfræðiþrautir um viðfangsefni sem gefa tækifæri til að beita innsæi, eigin
  túlkun og framsetningu, byggða á fyrri reynslu og þekkingu,
• sett fram, meðhöndlað, túlkað og greint einföld reiknilíkön, teikningar og myndrit
  sem tengjast umhverfi hans og daglegu lífi,
• sett fram óformleg og einföld, formleg stærðfræðileg rök, skilið og metið munnlegar
  og skriflegar röksemdir sem settar eru fram af öðrum.





Að kunna að fara með tungumál og verkfæri stærðfræðinnar
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
notað hugtök og táknmál stærðfræðinnar og hentug verkfæri, þar með talin hlutbundin gögn, reiknirit, talnalínu, vasareikna og tölvur til rannsókna á stærðfræðilegum viðfangsefnum og tjáð sig bæði munnlega og skriflega um lausnir stærðfræðiverkefna,
• notað óformlega framsetningu annars vegar og táknmál stærðfræðinnar hins
  vegar og sýnt að hann skilur innbyrðis tengsl þeirra,
• túlkað og notað einföld stærðfræðitákn, þar með talið breytur og einfaldar
  formúlur, túlkað milli táknmáls og daglegs máls,
• sett sig inn í og tjáð sig, bæði munnlega og skriflega, um ólíkar leiðir við lausnir
  stærðfræðiverkefna,
• valið og notað hentug verkfæri, þar með talin hlutbundin gögn, reiknirit, talnalínu,
   vasareikna og tölvur, til rannsókna á stærðfræðilegum viðfangsefnum.








Vinnubrögð og beyting stærðfræðinnar
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
unnið einn og í samvinnu við aðra að því að rannsaka, greina, túlka, setja fram
tilgátur og finna lausnir á viðfangsefnum, sem tengjast samfélagi og umhverfi með fjölbreyttum aðferðum og kynnt niðurstöður sínar, lesið og lagt mat á stærðfræðitexta,

• tekið þátt í að þróa fjölbreyttar lausnaleiðir, með því m.a. að nota skráningu
  með tölum, texta og teikningum,
• rannsakað, sett fram á skipulegan hátt og rökrætt stærðfræðilega, með því
  m.a. að nota hlutbundin gögn, skráningu og upplýsingatækni,
• lesið einfaldan, fræðilegan texta og notað upplýsingar, þar sem
  stærðfræðihugtök koma fyrir,
• undirbúið og flutt kynningar á eigin vinnu með stærðfræði,
• unnið í samvinnu við aðra að lausnum stærðfræðiverkefna, þar sem byggt er á
  ólíkum forsendum og hugmyndum nemenda,
• þekki helstu hugtök um fjármál og geti tekist á við verkefni úr umhverfinu eða
  samfélaginu, þar sem þarf að afla upplýsinga, vinna úr þeim og finna lausn,
• áttað sig á möguleikum og takmörkum stærðfræðinnar til að lýsa veruleikanum.






Tölur og reikningur
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
tjáð stærðir og hlutföll, reiknað með ræðum tölum, tekið þátt í að þróa lausnaleiðir við útreikninga, skráð svör sín með tugakerfisrithætti, nýtt
sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna,

• notað ræðar tölur, raðað þeim og borið saman,
• notað tugakerfisrithátt og sýnt að hann skilur sætiskerfi,
• skráð hlutföll og brot á ólíka vegu og sýnt fram á að hann skilur sambandið<
  milli almennra brota, tugabrota og prósenta,
• reiknað á hlutbundinn og óhlutbundinn hátt með ræðum tölum,
• tekið þátt í að þróa hentugar aðferðir við reikning með ræðum tölum sem
  byggja á eigin skilningi,
• leyst viðfangsefni sem sprottin eru úr daglegu lífi og umhverfi, með
  hugarreikningi, vasareikni, tölvuforritum og skriflegum útreikningum,
• notað almenn brot, tugabrot og prósentur við útreikninga á daglegum
  viðfangsefnum,
• nýtt sér samhengi og tengsl reikniaðgerðanna og notað algengar reiknireglur,
  s.s. víxlreglu, tengireglu og dreifireglu.





Algebra
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
rannsakað mynstur, notað bókstafi fyrir óþekktar stærðir, fundið lausnir á jöfnum með óformlegum aðferðum og notað reglur algebrunnar við reikning,
• rannsakað og sett fram talnamynstur á skipulegan hátt og unnið með
  regluleika í rúmfræði, lýst mynstrum og venslum með tölum, myndum, orðum
  og á táknmáli algebrunnar,
• notað bókstafi fyrir óþekktar stærðir í einföldum stæðum og jöfnum,
• fundið lausnir á jöfnum og ójöfnum með óformlegum aðferðum, þ.e. notað
  víxlreglu, tengireglu og dreifireglu við reikning, bæði í huga og á blaði.









Rúmfræði og mælingar
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
notað undirstöðuhugtök rúmfræðinnar og unnið með rúmfræðilegar færslur,
einslögun og mælikvarða, búið til líkön og teiknað skýringarmyndir, áætlað
og mælt horn, þyngd, tíma og hitastig með viðeigandi mælikvarða, áætlað og mælt lengd, flöt og rými og nýtt hnitakerfi, hlutbundin gögn og tölvur til þessara hluta,

• notað hugtök og aðferðir rúmfræðinnar til að útskýra hversdagsleg og
  fræðileg fyrirbrigði
• rannsakað og greint tvívíð og þrívið form, teiknað einfaldar flatar- og
  þrívíddarmyndir, speglað, snúið og hliðrað flatarmyndum við rannsóknir
  á mynstrum sem þekja flötinn
• notað mælikvarða og einslögun í tengslum við teikningar, áætlað ummál,
  flatarmál og rúmmál í raunverulegum aðstæðum, rannsakað aðferðir til að
  reikna það,
• áætlað og mælt horn, þyngd, tíma og hitastig með viðeigandi mælikvarða
  og dregið ályktanir af mælingunum,
• rannsakað og gert tilraunir í rúmfræði með því að nota tölvur og hlutbundin
  gögn,
• notað hnitakerfi til að tjá og leysa rúmfræðileg verkefni,
• tengt tölur og útreikninga við flatarmyndir og þrívíða hluti.





Tölfræði og líkindi
í lok 4. bekkjar
Að nemandi geti:
framkvæmt einfaldar tölfræðirannsóknir, unnið og lesið úr niðurstöðum sínum, sett upp í einföld myndrit, tekið þátt í umræðum um gögn og upplýsingar, dregið ályktanir um líkur og reiknað út líkur í einföldum tilvikum,
• safnað og unnið úr gögnum, miðlað upplýsingum um þau, m.a. með töflum
  og myndritum,
• gert einfaldar tölfræðirannsóknir og dregið einfaldar ályktanir af þeim,
• sótt gögn í gagnabanka, lesið, útskýrt og túlkað gögn og upplýsingar sem
  gefnar eru í töflum og myndritum, • dregið ályktanir um líkur út frá eigin
  tilraunum og borið saman við fræðilegar líkur,
• reiknað út líkur í einföldum tilvikum.

Powered by Create your own unique website with customizable templates.