Hæfniviðmið í skólaíþróttum
Líkamsvitund, leikni og afkastageta við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert æfingar sem reyna á loftháð og loftfirrt þol, • sýnt og framkvæmt styrktaræfingar sem reyna á hámarksgetu og úthald í kyrrstöðu og hreyfingu, • gert liðleikaæfingar sem reyna á hreyfivídd og hreyfigetu, sýnt útfærslu flókinna hreyfinga þannig að þær renni vel saman, gert rytmískar æfingar og fylgt takti, • tekið þátt í hópíþróttum, einstaklingsíþróttum og heilsurækt innan og utan skólans, • nýtt sér stöðluð próf til að meta þrek og hreysti, lipurð og samhæfingu, • sýnt leikni og synt viðstöðulaust í bringusundi, baksundi, skriðsundi, flugsundi og kafsundi auk þess að geta troðið marvaða. |
Félagslegir þættir við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skilið mikilvægi virðingar og góðrar framkomu til að efla liðsandann og skilið mikilvægi góðrar ástundunar, sjálfsaga, sjálfstæðra vinnubragða, samvinnu og tillitsemi í tengslum við góðan árangur í íþróttum, • þekkt mismunandi tegundir leikreglna, farið eftir þeim og sýnt háttvísi í leik, bæði í hóp og einstaklingsíþrótt, • rökrætt kynheilbrigði, kyn- og staðalímyndir, afleiðingar eineltis og tekið virka afstöðu gegn ofbeldi. |
Heilsa og efling þekkingar við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skýrt helstu áhrif hreyfingar á líkamlega og andlega líðan og mikilvægi góðrar næringar fyrir vöxt og viðhald líkamans, • rætt eigin ábyrgð á líkamlegu og andlegu heilbrigði bæði sínu eigin og annarra, • útskýrt þjálfunaraðferðir og notað hugtök sem tengjast sundiðkun og ýmsum íþróttum, • vitað hvaða hlutverk helstu vöðvahópar líkamans hafa í tengslum við þjálfun líkamans, • sett sér skammtíma- og langtímamarkmið í íþróttum og heilsurækt, gert og framkvæmt eigin þjálfunaráætlun á grundvelli niðurstaðna prófa, • sótt og nýtt sér upplýsingar við alhliða heilsurækt og mat á eigin heilsu, • notað mælingar með mismunandi mælinákvæmni við mat á afkastagetu, • tekið þátt í leikjum af margvíslegu tagi, • sýnt ábyrgð í útivist. Skýrt tákn korta, tekið stefnu með áttavita og ratað um landsvæði eftir korti. |
Öryggis- og skipulagsreglur
við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið ákvarðanir á grundvelli öryggis- og umgengnisreglna og brugðist við óvæntum aðstæðum. Framkvæmt og útskýrt helstu atriði skyndihjálpar, endurlífgunar og björgunar úr vatni og notkun björgunaráhalda. Bjargað jafningja á björgunarsundi. |