Hæfnimarkmið í náttúrugreinum
Hæfniviðmið um verklag
Geta til aðgerða við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• greint og sagt frá hvernig tækninotkun og sjálfvirkni getur aukið eða dregið úr lífsgæðum íbúa og umhverfi þeirra, • greint þarfir fólks í nánasta umhverfi sínu og tjáð hugmyndir sínar um lausnir, • rætt mikilvægi samvinnu í samstilltum aðgerðum sem varða eigið umhverfi, • tekið afstöðu til málefna sem varða heimabyggð með því að vega og meta ólíka kosti. |
Nýsköpun og hagnýting þekkingar við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• fjallað um þekktar tækninýjungar eða vísindauppgötvanir og áhrif þeirra á atvinnuhætti og mannlíf í heimabyggð, umhverfi og náttúru, • unnið undir leiðsögn í hópi eftir verkskiptri tímaáætlun við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi, • fjallað um hvernig ólík hæfni nýtist í störfum nútímans. |
Gildi og hlutverk vísinda og tækni við lok 7. bekkjar |
Að nemnadi geti:
• gert sér grein fyrir mikilvægi gagna og líkana við að útskýra hluti og fyrirbæri, • lesið og skrifað um hugtök í náttúruvísindum, • útskýrt áhrif tækni og vísinda á líf fólks, • tengt þekkingu og beitinguvinnubragða í náttúrufræðinámi við lausn annarra verkefna og útskýrt hugsanleg áhrif nýjustu tækni og vísinda á vísindalega þekkingu. |
Vinnubrögð og færni við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• framkvæmt og útskýrt einfaldar athuganir úti og inni, • útskýrt texta um náttúruvísindi sér til gagns og farið eftir einföldum, munnlegum og skriflegum leiðbeiningum, • aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr efni á öðru tungumáli en íslensku, • beitt vísindalegum vinnubrögðum við öflun einfaldraupplýsinga innan náttúruvísinda og útskýrt ferlið, • kannað áreiðanleika heimilda með því að nota bækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur, • sett fram og rætt niðurstöður athugana á skýran og skipulegan hátt, • hlustað á, metið og rætt hugmyndir annarra. |
Ábyrgð á umhverfinu við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið eftir og rætt atriði í umhverfinu sínu, gert grein fyrir áhrifum þeirra á lífsgæði íbúa, • lýst dæmum af áhrifum af gjörðum mannsins á náttúru og manngert umhverfi í heimabyggð og á Íslandi, sagt frá hugsanlegri þróun í framtíðinni, • tekið þátt í og sýnt hæfni í samvinnu er lýtur að umbótum í heimabyggð, • gert grein fyrir eigin lífssýn og skilningi á samspili náttúrunnar, mannsins og heilbrigði eigin líkama, • tekið þátt í að skoða, skilgreina og bæta eigið umhverfi og náttúru. |
Hæfniviðmið um viðfangsefni
Að búa á jörðinni við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• framkvæmt og lýst eiginathugunum á jarðvegi, veðrun, rofi og himingeimnum, • útskýrt hvernig Ísland byggist upp, hvernig landslag þess og jarðvegur breytist, • rætt um hvernig ræktanlegt land er notað og ýmsar hliðar landnotkunar og verndunar gróðurs, • lýst veðri í heimabyggð og loftslagi á Íslandi, • útskýrt innbyrðis afstöðu sólar og jarðar og hvernig hreyfing þeirra tengist árstíða- og dægraskiptum og því að tíminn líður, • notað gervihnatta- og loftmyndir af yfirborði jarðar, til að lýsa heimabyggð, landinu í heild og völdum svæðum heimsins. |
Lífsskilyrði manna við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lýst helstu líffærakerfum mannslíkamans og starfsemi þeirra í grófum dráttum, • útskýrt tengsl heilbrigðis og þess sem borðað er, • útskýrt lífsskilyrði manna og helstu áhættuvalda í umhverfinu, • lýst breytingum sem verða við kynþroskaaldur og gert sér grein fyrir mikilvægi gagnkvæmrar virðingar í samskiptum kynjanna, • gert grein fyrir muni á hreinu vatni og menguðu, hvað megi gera til að draga úr vatnsmengun, • lýst samspili lífvera og lífvana þátta og tengt það hugmyndum manna um uppruna og þróun lífs á jörðu. |
Náttúra Íslands við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lýst reynslu sinni, athugun og upplifun af lífverum í náttúrulegu umhverfi, • lýst einkennum plantna og dýra, stöðu þeirra í náttúrunni, tengsl þeirra innbyrðis og við umhverfi sitt, • lýst ólíkum vistkerfum á heimaslóð eða við Ísland, • útskýrt hvernig aðlögun lífvera að umhverfinu gerir þær hæfari til að lifa af og fjölga sér, • lýst og útskýrt hvernig orka í íslensku umhverfi getur breytt um mynd, • útskýrt hvar og af hverju helstu náttúruhamfarir verða, sem búast má við á Íslandi og hvernig viðbrögð við þeim eru skiplögð. |
Heilbrigði umhverfisins við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert grein fyrir notkun manna á auðlindum, • dregið ályktanir af tilgangi flokkunar úrgangs, • útskýrt þjónustu sem náttúrulegir ferlar veita, • gert grein fyrir og nefnt dæmi um efnabreytingar og hamskipti, • lýst kröftum sem hafa áhrif á daglegt líf manna. |
Samspil vísinda, tækni og þróunar í samfélaginu við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• bent á algeng efni á heimilum og í samfélaginu, notkun þeirra og áhrif á heilsu manna og umhverfi, • lýst áhrifum tækni á íslenskar atvinnugreinar, • lýst bylgjuhreyfingum og rætt nýtingu hljóðs og ljóss í tækni og atvinnulífi, • lýst hvernig rafmagn verður til, eiginleikum segla og notkun þeirra, • gert grein fyrir næringargildi ólíkrar fæðu og hvers konar fæða er framleidd á Íslandi. |