Námsframvinda í íslensku á efsta stigi
Áætluð árleg námsframvinda í íslensku með markmiðum, viðfangsefnum, og kennslutilhögun fyrir 8. - 10. námsár skólans.
Áttunda námsár
Uppfært í september 2020 |
Í s l e n s k a
Markmið:
Námsefni: Skerpa 1, Finnur I, Fallorð, Skriffinnur, Málfinnur, Mályrkja I og II, Hrafnkelssaga Freysgoða, smásögur úr Mályrkju I og II, Ljóðspeglar og ljóðskýringar, fréttamiðlar, valbækur, kjörbækur, ljósrit ofl. og Internetið. Kennslutilhögun: Kennt er í lotum úr Skerpu 1, allan veturinn. Ein lota í Skerpu stendur yfir í u.þ.b. 3 – 4 vikur. Allir þættir íslenskunáms fá rúm í hverri lotu. Málfræði, stafsetning, ritun, framsögn og tjáning og lestur eru allt veigamiklir þættir sem nemendur eiga að fást við og fá þjálfun í með efni úr fjölbreyttu efni. Að hausti er gefin út gróf ársáætlun til viðmiðunar um yfirferð. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á sínu námi og eiga að sjá um að fylgja þeim markmiðum sem lögð eru fyrir í hverri lotu. Lögð er áhersla á að nemendur lesi töluvert og verður lesefnið margvíslegt. Mikilvægt er að nemendur fylgi gátlista Skerpu I. Heimanám: Lestur heima er mikilvægur og hver nemandi heldur skráningu yfir lestur sinn. Þjálfun réttritunar fer oft einnig fram heimafyrir. Ekki er gerð krafa að öðru leiti um heimanám svo fremur sem nemandi fylgi áætlun. Námsmat: Símat og lotupróf 50%, þekkingarmat 30%, yndislestur 10%, heimildarritgerð 5% og kjörbókarritgerð 5%. Nemendur hvattir til að nýta ýmsar leiðir til að koma kunnáttu sinni á framfæri Sjá nánari útlistun á Mentor.is |
Níunda námsár
Uppfært í september 2020 |
Í s l e n s k a
Markmið:
Námsefni: Skerpa 2, Skriffinnur, Málfinnur, Mályrkja I og II, Englar alheimsins, skáldsögur, smásögur, þjóðsögur, Ljóðspeglar, Ljóðspor og ljóðskýringar, valbækur, kjörbækur, ljósrit o.fl. og veraldarvefurinn. Kennslutilhögun: Unnið er í lotum úr Skerpu 2 allan veturinn. Ein lota í Skerpu stendur yfir í þrjár til fjórar vikur. Allir þættir íslenskunáms fá rúm í hverri lotu. Málfræði, stafsetning, ritun, framsögn og tjáning og lestur eru allt veigamiklir þættir sem nemendur eiga að fást við og fá þjálfun í með efni úr fjölbreyttu efni. Að hausti er gefin út gróf ársáætlun til viðmiðunar um yfirferð. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á sínu námi og eiga að sjá um að fylgja þeim markmiðum sem lögð eru fyrir í hverri lotu. Lögð er áhersla á að nemendur lesi töluvert og verður lesefnið margvíslegt. Mikilvægt er að nemendur fylgi gátlista Skerpu 2. Heimanám: Lestur heima er mikilvægur og hver nemandi heldur skráningu yfir lestur sinn. Þjálfun réttritunar fer oft einnig fram heimafyrir. Ekki er gerð krafa að öðru leiti um heimanám svo fremur sem nemandi fylgi áætlun. Námsmat: Símat og lotupróf 50%, þekkingarmat 30%, yndislestur 10%, heimildarritgerð 5% og kjörbókarritgerð 5%. Nemendur hvattir til að nýta ýmsar leiðir til að koma kunnáttu sinni á framfæri Sjá nánari útlistun á Mentor.is |
Tíunda námsár
Uppfært í september 2020 |
Í s l e n s k a
Markmið:
Námsefni: Skerpa 3, Gísla saga Súrssonar, Englar alheimsins, Íslendingaþættir, skáldsögur, smásögur, þjóðsögur, valin verkefni úr Kennslubók í málvísi og ljóðlist eftir Jón Norðdal, Ljóðspeglar, Ljóðspor og ljóðskýringar, valbækur, kjörbækur, ljósrit o.fl. og veraldarvefurinn. Kennslutilhögun: Nemendur þurfa að skoða matsviðmið fyrir 10. bekk og setja sér markmið og ákveða vinnu fyrir veturinn með tilliti til hvað þarf að þjálfa. Allir þættir íslenskunáms fá rúm í hverri lotu. Málfræði, stafsetning, ritun, framsögn og tjáning og lestur eru allt veigamiklir þættir sem nemendur eiga að fást við og fá þjálfun í. Að hausti er gefin út gróf ársáætlun til viðmiðunar um yfirferð. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á sínu námi og eiga að sjá um að fylgja þeim markmiðum sem lögð eru fyrir í hverri lotu. Lögð er áhersla á að nemendur lesi töluvert og verður lesefnið margvíslegt. Mikilvægt er að nemendur fylgi gátlista Skerpu 2 og 3. Heimanám: Lestur heima er mikilvægur og hver nemandi heldur skráningu yfir lestur sinn. Þjálfun réttritunar fer oft einnig fram heimafyrir. Ekki er gerð krafa að öðru leiti um heimanám svo fremur sem nemandi fylgi áætlun. Námsmat: Símat og lotupróf 50%, þekkingarmat 30%, yndislestur 10%, heimildarritgerð 5% og kjörbók 5%. Nemendur hvattir til að nýta ýmsar leiðir til að koma kunnáttu sinni á framfæri Sjá nánari útlistun á Mentor.is |