Hæfnimarkmið íslensku á miðstigi
Talað mál, hlustun og áhorf í lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tjáð sig skýrt og áheyrilega og gert sér grein fyrir gildi góðrar framsagnar, • tjáð eigin skoðanir og tilfinningar og haldið athygli áheyrenda, m.a. með aðstoð leikrænnar tjáningar, • tekið þátt í samræðum og rökræðum samkvæmt reglum, • hlustað af athygli og beitt þekkingu sinni og reynslu til að skilja það sem sagt er og greint frá aðalatriðum, • nýtt sér myndefni og rafrænt efni á gagnrýninn hátt, • átt góð samskipti, hlustað, gætt tungu sinnar og sýnt viðeigandi kurteisi. |
Lestur og bókmenntir í lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lesið texta við hæfi með góðum hraða og af skilningi, lagt mat á hann og túlkað, • notað þekkingu og reynslu ásamt ríkulegum orðaforða við lestur og skilning á texta, • greint og fjallað um aðalatriði í texta og helstu efnisorð og notað mismunandi aðferðir við lestur og skilning á texta, • lesið sér til ánægju og fróðleiks og gert öðrum grein fyrir þeim áhrifum sem texti hefur á hann, • lesið gamlar og nýjar bókmenntir, þar á meðal þjóðsögur, ljóð, og bókmenntir ætlaðar börnum og unglingum, • greint nokkur frásagnarform bókmennta og beitt fáeinum bókmenntafræðilegum hugtökum til að efla skilning, svo sem tíma, sjónarhorni, sögusviði og boðskap, • beitt nokkrum hugtökum til að fjalla um form og innihald ljóða, svo sem rím, ljóðstafi, hrynjandi, líkingar og boðskap, • aflað upplýsinga úr bókum og fjölbreyttu rafrænu efni, unnið úr þeim og nýtt við lausn verkefna, lagt nokkurt mat á gildi og trúverðugleika upplýsinga, • lesið úr einföldum tölulegum og myndrænum upplýsingum og túlkað þær, • valið sér fjölbreytt lesefni við hæfi til gagns og ánægju. |
Ritun í lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skrifað læsilega og af öryggi með persónulegri rithönd, beitt algengum aðgerðum í ritvinnslu, gengið frá texta og notað orðabækur, • valið textategund, skipulagt og orðað texta, svo sem sögur, frásagnir, lýsingar og fyrirmæli, á þann hátt sem hæfir tilefni, • samið texta þar sem beitt er eigin sköpun, notið þess að tjá hugmyndir sínar og reynslu og veitt öðrum hlutdeild með því að kynna ritunina eða leyfa öðrum að lesa, • beitt helstu atriðum stafsetningar og greinamerkjasetningar og hefur náð valdi á þeim, • lesið texta og skoðað hann með það í huga að kanna hvernig höfundur skrifar og nýtt það við eigin ritun, • skrifað texta á tölvu og beitt nokkrum aðgerðum í ritvinnslu, vísað til heimilda, • skrifað texta með ákveðinn lesanda í huga, á blað eða tölvu. |
Málfræði í lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert sér nokkra grein fyrir eigin máli og hefur skilning á gildi þess að bæta það, • notað allríkulegan orðaforða í ræðu og riti, gert sér grein fyrir margræðni orða og nýtt sér málfræðikunnáttu sína við orðmyndun, tal og ritun, • nýtt sér kunnáttu og færni til að fletta upp orðum í orðabókum og öðrum gagnabrunnum um mál, • áttað sig á hvernig orðaforðinn skiptist í sagnorð, fallorð og óbeygjanleg orð og greint hlutverk og helstu einkenni þeirra, • notað orðtök og málshætti í töluðu máli og rituðu og greint notagildi þeirra i texta, • beitt þekkingu sinni á málfræði við að búa til setningar, málsgreinar og efnisgreinar og gert sér grein fyrir fjölbreytileika málsins, • beitt þekkingu sinni á málfræðilegum hugtökum í umræðu um mál, ekki síst eigið mál, talað og ritað, |