Hæfnimarkmið í upplýsingatækni
Vinnulag og vinnubrögð við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt upplýsingaver sér til gagns bæði í stýrðu námi og á eigin forsendum, • nýtt rafrænt námsefni á ýmsu formi í tengslum við vinnutækni, vinnulag og annað nám, • sýnt sjálfstæði í vinnubrögðum undir leiðsögn og í samvinnu með öðrum, • nýtt sér mismunandi tæknibúnað á hagkvæman og fjölbreyttan hátt, • beitt réttri fingrasetningu. |
Upplýsingaöflun og úrvinnsla við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt fjölbreyttar leiðir og leitarvélar við markvissa öflun upplýsinga við hæfi, • nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni á fjölbreyttan hátt, • verið gagnrýninn á gæði ýmissa upplýsinga, • unnið með heimildir og sett fram einfalda heimildaskrá, • nýtt hugbúnað og forrit við einfalda uppbyggingu og uppsetningu ritsmíða, • nýtt hugbúnað/forrit við einfalda framsetningu á tölulegum gögnum. |
Tæki og búnaður
við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt hugbúnað/forrit við gerð ritunarverkefna og framsetningu tölulegra gagna, • nýtt hugbúnað/forrit við myndvinnslu, gerð stuttmynda og hljóð- og tónvinnslu, • nýtt hugbúnað/forrit við vefsmíðar. |
Sköpun og miðlun
við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• rætt og útskýrt á gagnrýninn hátt eigið upplýsinga- og miðlalæsi, • nýtt hugbúnað/forrit við miðlun þekkingar á skapandi og skýran hátt. |
Siðferði og öryggismál við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sýnt ábyrgð í meðferð upplýsinga og við heimildavinnu, • farið eftir reglum um ábyrga netnotkun, er meðvitaður um siðferðislegt gildi þeirra og tekur ábyrgð á eigin samskiptum og gögnum á Neti- og netmiðlum. |