Hæfnimarkmið í upplýsingatækni
Vinnulag og vinnubrögð við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt upplýsingaver sér til gagns og ánægju, s.s.til lesturs, hlustunar og leitarnáms, • nýtt rafrænt námsefni á einföldu formi til stuðnings við vinnutækni og vinnulag, • sýnt frumkvæði og tekið þátt í samvinnuverkefnum undir leiðsögn, • gert sér grein fyrir ólíkum aðferðum við notkun á ýmsum tæknibúnaði, • beitt undirstöðuatriðum í fingrasetningum. |
Upplýsingaöflun og úrvinnsla við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• leitað upplýsinga og nýtt við verkefnavinnu, • nýtt rafrænt og gagnvirkt námsefni, • unnið með heimildir, • nýtt upplýsingatækni og forrit við uppbyggingu einfaldra verkefna, • nýtt hugbúnað/forrit við framsetningu á einföldum tölulegum gögnum. |
Tæki og búnaður
við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• notað hugbúnað/forrit við einföld ritunarverkefni og framsetningu tölulegra gagna, • notað einfaldan hugbúnað/ forrit við myndvinnslu, • nýtt hugbúnað við einfalda vefsmíð. |
Sköpun og miðlun
við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lýst á einfaldan hátt eigið upplýsinga- og miðlalæsi, • notað hugbúnað/forrit við miðlun þekkingar á einfaldan hátt. |
Siðferði og öryggismál við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sýnt ábyrgð í meðferð upplýsinga, • farið eftir einföldum reglum um ábyrga netnotkun og er meðvitaður um siðferðislegt gildi þeirra. |