Hæfniviðmið í skólaíþróttum
Líkamsvitund, leikni og afkastageta við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert æfingar sem reyna á loftháð þol, • gert æfingar sem reyna á styrk og stöðugleika útlima og bols, • gert flóknar samsettar æfingar sem reyna á lipurð og samhæfingu, • sýnt leikni í nokkrum mismunandi íþróttagreinum, • tekið þátt í stöðluðum prófum til að meta þrek og hreysti, lipurð og samhæfingu, • synt viðstöðulaust baksund, skriðsund og kafsund 8 m auk þess að stinga sér af bakka. |
Félagslegir þættir
við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sýnt virðingu og góða framkomu hvort sem leikur vinnst eða tapast. Jafnframt viðhaft jákvæð og árangursrík samskipti til að efla liðsanda, • skýrt mikilvægi þess að hafa leikreglur, farið eftir þeim bæði í hóp- og einstaklingsíþrótt, • rætt líkamsvitund, kynheilbrigði, staðalímyndir í íþróttaumfjöllun og tekið virka afstöðu gegn ofbeldi. |
Heilsa og efling þekkingar við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert sér grein fyrir gildi heilbrigðs lífernis fyrir starfsemi líkamans og mikilvægi hreinlætis í tengslum við íþróttir og sundiðkun, • útskýrt misjafnan líkamlegan þroska einstaklinga og kynja, • notað hugtök sem tengjast sundiðkun og íþróttum, • tengt hlutverk taugakerfis, hjarta, blóðrásar og lungna við líkamlega áreynslu, • nýtt niðurstöður prófa til að setja sér skammtíma- og langtímamarkmið í íþróttum og heilsurækt og unnið að þeim, • sótt sér margvíslegar upplýsingar við undirbúning og úrvinnslu verkefna í skólaíþróttum og útivist, • notað mælingar með mismunandi mælinákvæmni við mat á afkastagetu. • tekið þátt í glímu og ýmsum leikjum, • tekið þátt á ábyrgan hátt í útivist með tilliti til aðstæðna og ratað um landsvæði eftir korti. |
Öryggis- og skipulagsreglur
við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert sér grein fyrir mikilvægi öryggis- og umgengnisregla og tekið ákvarðanir á þeim grunni. Beitt helstu atriðum skyndihjálpar, endurlífgun og bjargað jafningja á sundi stutta sundleið. |