Listgreinar hæfniviðmið á miðstigi
Dans við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• beitt líkama sínum markvisst í dansi og hreyfingu sjálfum sér til ánægju, • dansað grunnspor í paradönsum og einföldum þjóðdönsum, • geti sett saman einfalt dansverk, sýnt það og valið undir leiðsögn kennara umgerð (t.d. tónlist og rými) við hæfi, • tjáð sig í dansi, tengt saman hreyfingu, túlkun og tónlist og beitt kurteisisvenjum í dansi, • unnið sjálfstætt og með öðrum að dansverkefnum, bæði veitt og tekið á móti uppbyggilegri gagnrýni og nýtt sér hana í dansi, • rætt um dans út frá persónulegri upplifun. |
Leiklist við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt sér hugmyndir jafningja og lagt fram sínar eigin í leikrænu ferli og við undirbúning og sköpun leikþáttar, • nýtt sér efni úr ýmsum áttum sem kveikju við frumsköpun leikins efnis. Skapað leikþætti í félagi við aðra með skýrum persónum, söguþræði og framvindu, • nýtt sér leikmuni, búninga, einfaldan sviðsbúnað og tækni til þess að styrkja sköpun sína, • flutt leiktexta í hlutverki á viðeigandi hátt fyrir framan áhorfendur, • skapað skýra leikpersónu og viðhaldið henni í stuttum leikþætti með viðeigandi raddog líkamsbeitingu, • sýnt fram á tök á fleiri en einum leikstíl í eigin sköpun, túlkun og greiningu, • beitt fleiri en einu formi leiklistar (s.s. skuggaleikhúsi, látbragðsleik, kyrrmyndum), • sagt frá ferlinu við uppsetningu leiksýningar, helstu störfum sem unnin eru baksviðs í leikhúsi og lýst algengum sviðsbúnaði, • rætt um leikið efni á sviði og myndmiðlum út frá fleiri en einu sjónarhorni og sett það að einhverju leyti í samhengi við eigið líf og samfélag. |
Sjónlist við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• notað mismunandi efni, verkfæri og miðla á skipulagðan hátt í eigin sköpun, • nýtt sér grunnþætti myndlistar í eigin sköpun, • tjáð skoðanir eða tilfinningar í eigin sköpun með tengingu við eigin reynslu, • unnið hugmynd frá skissu að lokaverki bæði fyrir tví- og þrívíð verk, • byggt eigin listsköpun á hugmyndavinnu tengdri ímyndun, rannsóknum og reynslu, • beitt hugtökum og heitum sem tengjast aðferðum verkefna hverju sinni, • fjallað um eigin verk og verk annarra í virku samtali við aðra nemendur, • gert grein fyrir og fjallað um ýmsar stefnur myndlistar með því að bera saman stíla og tímabil tiltekinna verka og sett þau í það menningarlega samhengi sem þau voru sköpuð, • greint, borið saman og metið aðferðir við gerð margskonar listaverka, • greint og fjallað um áhrif myndmáls í umhverfinu og samfélaginu, • gert grein fyrir margvíslegum tilgangi myndlistar og hönnunar. |
Tónmennt við lok 7. bekkjar |
Að nemandi geti:
• greint og valið hljóðfæri og hljóðblæ við hæfi í tónsköpun og hlustun, • beitt eigin rödd á viðeigandi hátt í ólíkum raddverkum og söng, bæði í eigin verkum og annarra, • notað einföld tæki og forrit til að taka upp, skrásetja og setja saman eigið hljóð- eða tónverk, • tekið þátt í samspili eða samsöng með öðrum og flutt og túlkað eigin verk eða annarra með viðeigandi hætti fyrir áheyrendur og skrásett það, • greint ólíkar stíltegundir, myndað sér skoðun á þeim og rökstutt hana, • greint og útskýrt samhengi tónlistar og ólík tónlistarstílbrigði og tengt við þá menningu sem hann er sprottinn úr, • greint og að einhverju marki metið og endurskoðað eigin sköpunarverk og skólasystkina sinna í tónlist af sanngirni. |