Hæfniviðmið í samfélagsgreinum
Hæfniviðmið samfélagsgreina tengjast grunnþáttum menntunar og er skipt í þrjá flokka, þ.e. reynsluheim, hugarheim og félagsheim. Enn fremur leitast þau við að mæta áhersluþáttum grunnskólalaga og aðalnámskrár. Hvert hæfniviðmið byggist á að minnsta kosti einum efnisþætti og koma sumir þeirra ítrekað fyrir. Efnisþættir hæfniviðmiðanna skiptast þannig:
REYNSLUHEIMUR
|
HUGARHEIMUR
|
FÉLAGSHEIMUR
|
REYNSLUHEIMUR Umhverfi, samfélag, saga, menning við lok 4. bekkjar. |
Að nemandi geti:
• borið kennsl á gildi, svo sem virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum, umhyggju og sáttfýsi, • bent á tengsl valinna þátta í samfélagi, náttúru, trú og lífsviðhorfi, einkum í nærsamfélaginu, • lýst samhengi orða, athafna og afleiðinga, • nefnt dæmi um einkenni og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu, sögu og menningar, • sagt frá einkennum og sögu heimabyggðar og tengslum við önnur svæði á Íslandi, • aflað sér og nýtt vitneskju um samfélagsmálefni í námsgögnum og miðlum. • rætt um samfélagið og notað valin hugtök í því samhengi, • gert sér grein fyrir nokkrum einkennum þess að náttúrufar breytist vegna ytri áhrifa, • sagt frá dæmum, um hvernig loftslag og gróðurfar hafa áhrif á hvernig fólk lifir, • bent á dæmi um áhrif tækni og framkvæmda á mannlíf og umhverfi, • gert sér grein fyrir gildi náttúru og umhverfis og mikilvægi góðrar umgengni, • áttað sig á hlutverki landakorta og notagildi þeirra, • sagt frá atburðum og persónum á völdum tímum, sem tengjast nærsamfélaginu, • velt fyrir sér upplýsingum, gildi þeirra og áreiðanleika, • komið auga á nokkra þætti sem hafa haft áhrif á mannlífið í tímans rás, svo sem umhverfi og skipulag samfélaga, • sagt frá gerð og mótun íslensks samfélags fyrr og nú, • sagt frá völdum þáttum og tímabilum í sögu fjölskyldu og heimabyggðar, • bent á dæmi um hvernig sagan birtist í munum og minningum, • áttað sig á að trúar- og lífsviðhorf fólks birtast í mismunandi viðhorfum, siðum og venjum, • velt fyrir sér nærtækum spurningum sem tengjast trú, lífsviðhorfi og breytni, • sagt deili á nokkrum frásögnum, helstu hátíðum og siðum kristni og annarra trúarbragða, einkum í nærsamfélaginu, • áttað sig á muninum á völdum þáttum trúar- og lífsviðhorfa, • komið auga á dæmi um áhrif Biblíunnar á samfélagið, • nefnt dæmi um trúarlegar vísanir í listum og bókmenntum, • áttað sig á mikilvægi fjölskyldunnar og fjölbreytni fjölskyldugerða í samfélagi manna, • bent á dæmi um lýðræðislega þætti í nærsamfélaginu, • bent á nokkrar mikilvægar stofnanir samfélagsins, • áttað sig á gildi samhjálpar í samfélaginu, • áttað sig á að hann er hluti af stærra samfélagi, • lýst kostnaði vegna eigin neyslu og átti sig á ýmsum tilboðum sem hvetja til útgjalda og neyslu, • varast hættur á heimili sínu og í nágrenninu. |