Hæfnimarkmið íslensku á miðstigi
Talað mál, hlustun og áhorf í lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• flutt mál sitt skýrt og áheyrilega og hefur tileinkað sér viðeigandi talhraða og fas, • gert sér grein fyrir eðli góðrar framsagnar og framburðar og nýtt leiðbeiningar um framsögn, svo sem um áherslu, tónfall, hrynjandi og fas og lagað það að viðtakanda og samskiptamiðli á fjölbreyttan hátt, m.a. með leikrænni tjáningu, • nýtt aðferðir sem hann hefur lært til að taka virkan þátt í samvinnu, samræðum og rökræðum, tjáð skoðanir sínar með ýmsum hætti, rökstutt þær og valið þeim miðil sem hentar, • hlustað, tekið eftir og nýtt sér upplýsingar í töluðu máli til fróðleiks og skemmtunar, einnig notið myndefnis, upplestrar, leikins efnis og tónlistar og gert grein fyrir skoðun sinni á viðkomandi efni, • nýtt sér fjölmiðla, svo sem útvarp, sjónvarp, kvikmyndir og rafrænt efni, og tekið afstöðu til þess sem þar er birt, • átt góð samskipti þar sem gætt er að máli, hlustun, tillitssemi, virðingu og kurteisi. |
Lestur og bókmenntir í lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• lesið almenna texta af öryggi og með góðum skilningi, lagt mat á þá og túlkað, • skilið mikilvægi þess að geta lesið og eflt eigið læsi, • og m.a. valið og beitt mismunandi aðferðum við lestur, • greint og skilið aðalatriði og aukaatriði í margs konar texta og glöggvað sig á tengslum efnisatriða, • gert sér grein fyrir eðli og einkennum margvíslegra textategunda og gert öðrum grein fyrir því, • lesið, túlkað, metið og fjallað um fjölbreyttar íslenskar og erlendar bókmenntir og gert sér grein fyrir gildi bókmennta, • beitt nokkrum grunnhugtökum í bókmenntafræði, svo sem minni, fléttu, sjónarhorni og sögusviði og kannast við myndmál, algengustu tákn og stílbrögð, • notað algeng hugtök í bragfræði í umfjöllun um bundið mál og óbundið, lesið og túlkað ljóð af ýmsum toga og frá ýmsum tímum, • leitað og aflað sér heimilda úr ýmsum gagnabrunnum og lagt mat á gildi og trúverðugleika ritaðs máls, svo sem fjölmiðla- og margmiðlunarefnis, tekið gagnrýna afstöðu til þess, • unnið úr tölulegum og myndrænum upplýsingum, túlkað þær, tengt saman efni sem sett er fram á ólíkan hátt og nýtt sér, • valið sér lesefni til gagns og ánægju og komið fram sem sjálfstæður lesandi sem gerir sér grein fyrir gildi þess að lesa. |
Ritun í lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skrifað skýrt og greinilega og beitt ritvinnslu af öryggi, notað orðabækur og önnur hjálpargögn, gengið frá texta, vísað til heimilda og skráð þær, • beitt skipulegum vinnubrögðum við ritun, skipað efnisatriðum í röklegt samhengi og mótað málsgreinar og efnisgreinar, • tjáð hugmyndir sínar og skoðanir og fært rök fyrir þeim í rituðu máli, samið texta frá eigin brjósti og er óhræddur við að beita ríkulegu tungutaki í skapandi ritun, • beitt reglum um réttritun, hefur náð góðu valdi á stafsetningu og gerir sér grein fyrir að rétt stafsetning er virðing við mál, texta og lesanda, • valið og skrifað mismunandi textagerðir sem hæfa viðkomandi verki og beitt mismunandi orðaforða og málsniði við hæfi, • notað helstu aðgerðir við ritvinnslu, valið viðeigandi heimildir, vísað til þeirra og sett í heimildaskrá svo sem reglur kveða á um, • skrifað rafrænan texta og tengt texta, mynd og hljóð eftir því sem við á, gerir sér grein fyrir lesanda og miðar samningu við hann. |
Málfræði í lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• beitt helstu málfræðihugtökum í umræðu um notkun málsins og þróun þess, • valið orð í tali og ritun í samræmi við málsnið, gert sér grein fyrir mikilvægi þess að rækta orðaforðann og nýtt reglur um orðmyndun og einingar orða við ritun, • flett upp í handbókum, orðasöfnum og rafrænum orðabönkum og nýtt sér málfræðilegar upplýsingar sem þar er að finna, • áttað sig á beygingarlegum og merkingarlegum einkennum orðflokka og gert sér grein fyrir hlutverki þeirra í eigin texta og annarra, • notað fleyg orð, algeng orðtök, málshætti og föst orðasambönd til að auðga mál sitt og gerir sér grein fyrir þýðingu lestrar, ekki síst bókmennta, í þessu skyni, • gert sér grein fyrir mismunandi málnotkun og málsniði eftir efni og tilefni. Áttar sig á staðbundnum, starfstengdum og aldurstengdum tilbrigðum í orðaforða og málnotkun og þekkir til helstu framburðarmállýskna, • áttað sig á skyldleika íslensku við önnur mál og að tungumál, þar á meðal íslenska, breytast sífellt, |