Upplýsinga- og tæknimennt
Áætluð árleg námsframvinda í upplýsinga- og tæknimennt með markmiðum, viðfangsefnum, og kennslutilhögun fyrir 5. - 7. námsár skólans.
Fimmta, sjötta og sjöunda námsár
Uppfært í september 2021 |
Markmið: Að nemandi:
· Fái þjálfun í fingrasetningu á tölvu. · Geti skeytt myndum inn í texta á tölvutæku formi. · Þjálfist í notkun forrita sem nemendur nota í námi sínu · Fái þjálfun í að vista og sækja skjöl í tölvunni. · Þjálfist í að nota leitarvélar til upplýsingaröflunar. · Þjálfist í notkun tölvupósts og þekki reglur um örugga netnotkun. · Kynnist einfaldri forritun. Námsefni: Forritin Word, Power Point, Excel, Publisher og netpóstur, Google-leitarvélin (google.is), Scratch og önnur forrit á netinu. Umhverfi Mentors kynnt og nemendur læra að nýta það. Ítarefni og vefsíður frá kennara Heimanám: Heimanám er lítið en stundum er nemendur beðnir um að nýta sér heima það sem þeir hafa lært í skólanum, t.d. vélrita, senda tölvupóst o.þ.h. Námsmat: Símat og verkefnaskil Nánari upplýsingar á mentor. |