Námsframvinda í náttúrufræðigreinum á miðstigi
Áætluð árleg námsframvinda í náttúrufræðigreinum með markmiðum, viðfangsefnum, og kennslutilhögun fyrir 5. - 7. námsár skólans
Fimmta- sjöunda námsár
Uppfært í september 2021 |
Markmið:
Sjá metanleg hæfniviðmið á Mentor (Aðalnámskrá Grunnskólanna) Kennslutilhögun: Kennt er í lotum með ákveðnum hæfniviðmiðum sem tilgreind eru fyrir hverja lotu. Kennt er bæði bóklegt og verklegt. Stuðst er við bækur, myndbönd, vefefni og efni frá kennara. Verklegur tími er sameiginlegur á öllu miðstiginu og áhersla á fjölbreytileg verkefni og tilraunir. Unnið ýmist í hópum, litlum og stórum og, einnig sem einstaklingar. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð, þátttöku í hópavinnu og umræðum, samvinnu og heimildaöflun. Námsmat: Notað er leiðsagnarmat. Hver lota inniheldur vinnu og verkefnaskil sem metin eru í vinnuferlinu og einnig eru þau gerð upp að lotu lokinni miðað við þau markmið sem unnið er með. Lotur eru á Mentor og námsmat við hverja lotu. Heimanám: Einstaka sinnum heimaverkefni. Lestur, heimildaöflun, einfaldar rannsóknir. Nánari útlistun má sjá á mentor.is |