Listgreinar hæfniviðmið á miðstigi
Dans við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• samhæft tónlist og hreyfingu með góðri líkamsvitund og líkamsbeitingu og dansað mismunandi dansform sér til ánægju, • sýnt öryggi og færni til að dansa einn eða sem hluti af pari eða hópi, • tekið þátt í skapandi vinnuferli í dansi, sett saman einfalt dansverk og valið umgerð við hæfi, • dansað fyrir framan áhorfendur með tilfinningu fyrir þáttum eins og túlkun, augnsambandi, rými, líkamsbeitingu og kurteisisvenjum, • valið milli ólíkra dansstíla, prófað sig áfram og tekið sjálfstæðar ákvarðanir í túlkunarog sköpunarferli út frá eigin þekkingu og leikni í dansi, • tjáð og túlkað hugmyndir sínar og rætt dans á gagnrýninn hátt, beitt við það viðeigandi orðaforða og sett það í menningar- og sögulegt samhengi. |
Leiklist við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• unnið í hópi að fjölbreyttum leiklistarverkefnum, • bæði veitt og tekið á móti uppbyggilegri gagnrýni og nýtt sér hana inn í vinnuferli í leiklist, • valið milli mismunandi aðferða við sviðssetningu, bæði hvað varðar frásagnarform og leikstíl, prófað sig áfram og tekið sjálfstæðar ákvarðanir í sköpunarferlinu. Skrifað handrit að stuttu leikverki þar sem beitt er grunnreglum við uppsetningu leikhandrits fyrir svið og/eða myndmiðla, • nýtt sér leikmuni, búninga, einfaldan sviðsbúnað og tækni til þess að styrkja sköpun sína á markvissan hátt, • prófað sig áfram og valið úr túlkunarleiðum á mismunandi tegundum leiktexta, • túlkað leikpersónu á sviði í góðu samspili við meðleikara. Beitt rými, radd- og líkamsbeitingu á meðvitaðan hátt til þess að styrkja túlkun sína, • valið milli forma og stíls í eigin sköpun og rökstutt val sitt, • skrásett og rökstutt eigið vinnuferli í leiklist, • rökrætt leikið efni á sviði og í myndmiðlum á gagnrýninn hátt, beitt við það viðeigandi orðaforða og sett það að nokkru leyti í menningarlegt og sögulegt samhengi. |
Sjónlist við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• valið á milli mismunandi aðferða við sköpun, prófað sig áfram og unnið hugmyndir í fjölbreytta miðla, • greint og beitt fjölbreyttum aðferðum og tækni, • tjáð skoðanir eða tilfinningar í eigin sköpun með tengingu við eigin reynslu og gagnrýni á samfélagið, • sýnt og útskýrt vinnuferli frá hugmynd að lokaverki sem felur m.a. í sér upplýsingaöflun, tilraunir og samtal, • skrásett og sett fram hugmyndir á fjölbreyttan hátt byggðar á eigin ímyndunarafli og / eða rannsókn, myndrænt og/ eða í texta, • notað orðaforða og hugtök til að tjá skoðanir sýnar á myndlist og hönnun og fært rök fyrir þeim út frá eigin gildismati, • gagnrýnt af þekkingu, sanngirni og virðingu eigin verk og annarra bæði einn og í samvinnu, • greint, borið saman og lýst ýmsum stílum og stefnum í myndlist og hönnun, bæði á Íslandi og erlendis og tengt það við þá menningu sem hann er sprottinn úr, • greint hvernig samtímalist fæst við álitamálefni daglegs lífs með fjölbreyttum nálgunum sem oft fela í sér samþættingu listgreina, • túlkað listaverk og hönnun með tilvísun í eigin reynslu, nærumhverfi, samtímann, gert grein fyrir margvíslegum tilgangi myndlistar og hönnunar og sett hann í persónulegt, menningarlegt og sögulegt samhengi, • greint hvernig sjónrænt áreiti daglegs lífs hefur áhrif á líf okkar og gildismat. |
Tónmennt við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• greint, valið og notað hljóðfæri og hljóðblæ við hæfi í tónsköpun og hlustun, • tekið þátt í tónsköpun af einhverju tagi, s.s. kórsöng eða samspili sjálfum sér og öðrum til ánægju, • notað algeng tæki, hljóðfæri, rödd og forrit til að skapa eigin tónsmíð og / eða hljóðverk, • tekið þátt í að skapa og flytja eigin verk og annarra, gagnrýnt og rökstutt út frá eigin smekk, stíltegund tónlistar og fagurfræði, • greint, útskýrt og endurskoðað eigin sköpunarverk og samnemenda í tónlist af sanngirni og virðingu, • geta rökstutt skoðun sína á tónlist út frá eigin smekk og fagurfræði, • staðið með eigin tónsköpun eða tónlistarvali og rökstutt val sitt, • greint og útskýrt ólík tónlistarstílbrigði, hljóðfæri og hljóðgjafa og sett í persónulegt, sögulegt og menningarlegt samhengi. |