Námsframvinda í verkgreinum á miðstigi
Áætluð árleg námsframvinda í verkgreinum með markmiðum, námsefni, heimanámi og kennslutilhögun fyrir 5. - 7. námsár skólans
Fimmta námsár
Uppfært í október 2019 |
T e x t i l m e n n t
Markmið: Nemandi geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar og geti beitt til þess einföldum áhöldum. Nemandi læri hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu og geti unnið eftir leiðbeiningum kennara. Nemandi þrói hugmynd að hlut og útfæri skreytingar. Nemandi skoði og meti eigin verk og annarra út frá fagurfræði og rökstyðji matið. Námsefni: Nálar, heklunálar, prjónar, garn, saumavél, tau, rennilásar, litir og fleira þessu tengt. Kennslutilhögun: Nemendur vinna skylduverkefni hver fyrir sig þar sem þeir læra mismunandi sporgerðir í útsaumi og þjálfist áfram í vélsaumi. Nemendur prjóna og hekla einföld stykki eftir getu hvers og eins. Nemendur sýni fram á skipuleg og vönduð vinnubrögð, vinni eftir skriflegum leiðbeiningum og noti heiti sem tengjast greininni. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að umgangast efni og beita áhöldum á réttan hátt, bæði við vinnu og er þeir ganga frá eftir sig. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Við mat á verkefnum nemenda er tekið tillit til þátta eins og framfara, sjálfstæðis, frumkvæðis og samstarfshæfni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því sem símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. H e i m i l i s f r æ ð i Markmið: Nemandi á að geta notað einföld áhöld og tæki og vita hvað ber að varast við notkun þeirra. Nemandi temji sér að vinna í sátt og samlyndi. Nemandi temji sér hreinlæti í verki og beri ábyrgð á frágangi eftir sig. Nemandi fái þjálfun í að fara eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum. Nemandi geri sér grein fyrir að góð næring er undirstaða góðrar heilsu. Námsefni: Gott og gagnlegt 1 og vinnubók, Fæðuhringurinn veggspjald og Komdu og skoðaðu eldhúsið. Kennslutilhögun: Nemendum er skipt í hópa og hver hópur fær skilgreint verkefni, oft skriflegt í formi ákveðinnar uppskriftar eða munnlegrar sem útheimtir leit í námsgögnum. Mikil áhersla er lögð á samvinnu nemenda innan hóps. Verkleg og bókleg verkefni. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni og vinnubækur nemenda metnar. S m í ð i Markmið: Að nemendur:
Kennslutilhögun: Verkleg kennsla í smíðastofu. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Hegðun, ástundun og vandvirkni. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni nemenda metin. |
Sjötta námsár
Uppfært í október 2019 |
T e x t í l m e n n t
Markmið: Nemandi geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar og geti beitt til þess einföldum áhöldum. Nemandi læri hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu og geti unnið eftir leiðbeiningum kennara. Nemandi þrói hugmynd að hlut og útfæri skreytingar. Nemandi skoði og meti eigin verk og annarra út frá fagurfræði og rökstyðji matið. Námsefni: Nálar, heklunálar, prjónar, garn, saumavél, tau, rennilásar, litir og fleira þessu tengt. Kennslutilhögun: Nemendur vinna skylduverkefni hver fyrir sig þar sem þau læra mismunandi sporgerðir í útsaumi og þjálfist áfram í vélsaumi. Nemendur prjóna og hekla einföld stykki eftir getu hvers og eins. Nemendur sýni fram á skipuleg og vönduð vinnubrögð, vinni eftir skriflegum leiðbeiningum og noti heiti sem tengjast greininni. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að umgangast efni og beita áhöldum á réttan hátt, bæði við vinnu og er þau ganga frá eftir sig. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Við mat á verkefnum nemenda er tekið tillit til þátta eins og framfara, sjálfstæðis, frumkvæðis og samstarfshæfni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því sem símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. H e i m i l i s f r æ ð i Markmið: Nemandi á að geta notað einföld áhöld og tæki og vita hvað ber að varast við notkun þeirra. Nemandi temji sér að vinna í sátt og samlyndi. Nemandi temji sér hreinlæti í verki og beri ábyrgð á frágangi eftir sig. Nemandi fái þjálfun í að fara eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum. Nemandi geri sér grein fyrir að góð næring er undirstaða góðrar heilsu. Námsefni: Gott og gagnlegt 2 + vinnubók, Fæðuhringurinn veggspjald og Komdu og skoðaðu eldhúsið. Kennslutilhögun: Nemendum er skipt í hópa og hver hópur fær skilgreint verkefni, oft skriflegt í formi ákveðinnar uppskriftar eða munnlegrar sem útheimtir leit í námsgögnum. Mikil áhersla er lögð á samvinnu nemenda innan hóps. Verkleg og bókleg verkefni. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni og vinnubækur nemenda metnar. S m í ð i Markmið: Að nemendur
Kennslutilhögun: Verkleg kennsla í smíðastofu Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni nemenda metin. |
Sjöunda námsár
Uppfært í október 2019 |
T e x t í l m e n n t
Markmið: Nemandi geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar og geti beitt til þess einföldum áhöldum. Nemandi læri hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu og geti unnið eftir leiðbeiningum kennara. Nemandi geti nýtt sér handbækur og unnið eftir skriflegum leiðbeiningum. Nemandi þrói hugmynd að hlut og útfæri skreytingar. Nemandi skoði og meti eigin verk og annarra út frá fagurfræði og rökstyðji matið. Námsefni: Nálar, heklunálar, prjónar, garn, saumavél, tau, rennilásar, snið, litir og fleira þessu tengt. Kennslutilhögun: Nemendur læra að taka mál og taka upp snið. Nemendur vinna verkefni í útsaumi, prjóni og hekli að eigin vali og eftir getu hvers og eins. Byrjað verður á skylduverkefni í vélsaumi með áframhaldandi þjálfun á saumavél í huga. Nemendur vinna einhver verkefni að eigin vali og frumkvæði. Nemendur sýni fram á skipuleg og vönduð vinnubrögð, vinni eftir skriflegum leiðbeiningum og noti heiti sem tengjast greininni. Einnig er lögð áhersla á að nemendur geti valið form, liti, efni og aðferðir út frá fagurfræði og hagnýti og rökstutt valið. Lögð verður áhersla á að nemendur læri að umgangast efni og beita áhöldum á réttan hátt, bæði við vinnu og er þeir ganga frá eftir sig. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Við mat á verkefnum nemenda er tekið tillit til þátta eins og framfara, sjálfstæðis, frumkvæðis og samstarfshæfni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. H e i m i l i s f r æ ð i Markmið: Nemandi á að geta notað einföld áhöld og tæki og vita hvað ber að varast við notkun þeirra. Nemandi temji sér að vinna í sátt og samlyndi. Nemandi temji sér hreinlæti í verki og beri ábyrgð á frágangi eftir sig. Nemandi fái þjálfun í að fara eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum. Nemandi geri sér grein fyrir að góð næring er undirstaða góðrar heilsu. Námsefni: Gott og gagnlegt 3 + vinnubók, Fæðuhringurinn veggspjald og Ég er það sem ég vel. Kennslutilhögun: Nemendum er skipt í hópa og hver hópur fær skilgreint verkefni, oft skriflegt í formi ákveðinnar uppskriftar eða munnlegrar sem útheimtir leit í námsgögnum. Mikil áhersla er lögð á samvinnu nemenda innan hóps. Bókleg og verkleg verkefni. Tvær kennslustundir á viku, hálft skólaárið. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni og vinnubækur nemenda metnar. S m í ð i Markmið:
Kennslutilhögun: Verkleg kennsla í smíðastofu. Heimanám: Ekki áætlað. Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því sem símat. Þá eru einnig verkefni nemenda metin. |