Hæfnimarkmið í upplýsingatækni
Vinnulag og vinnubrögð við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt upplýsingaverið á fjölbreyttan hátt til þekkingaröflunar og miðlunar, • unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á eigin námsframvindu, • unnið á skapandi og gagnrýninn hátt, sjálfstætt og með öðrum, • nýtt sér til fullnustu möguleika margvíslegs tæknibúnaðar á hagkvæman og markvissan hátt, • beitt réttri fingrasetningu. |
Upplýsingaöflun og úrvinnsla við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt hugbúnað/forrit og önnur gögn við upplýsingaleit, • nýtt efni á margvíslegu formi og rafrænan stuðning, s.s. ítarefni, efni úr fjölmiðlum, orðabækur, veforðasöfn, leiðréttingarforrit, tungumálaforrit og leitarforrit og umgengist þau af gagnrýni, • beitt gagnrýnni hugsun við að vega og meta upplýsingar með tilliti til gæða og efnismeðferðar þeirra, • unnið með heimildir, virt siðferði í heimildavinnu og sett fram heimildaskrá samkvæmt viðurkenndum aðferðum, • nýtt hugbúnað og forrit við uppsetningu ritgerða og ritsmíða samkvæmt viðmiðum um uppsetningu og frágang, • nýtt hugbúnað/forrit við framsetningu á tölulegum gögnum. |
Tæki og búnaður
við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt hugbúnað/forrit við flókna framsetningu ritunarverkefna og tölulegra gagna, • nýtt hugbúnað/forrit við myndvinnslu, hljóðvinnslu og gerð myndbanda, • nýtt hugbúnað/forrit við fjölbreyttar vefsmíðar |
Sköpun og miðlun
við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• útskýrt einfaldan hugbúnað, eðli og uppbyggingu tölvu, • nýtt hugbúnað við forritun og miðlun þekkingar á fjölbreyttan og skapandi hátt. |
Siðferði og öryggismál við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sýnt ábyrgð við meðferð og dreifingu upplýsinga hvort sem er til persónulegra nota eða heimilda- og verkefnavinnu, • nýtt rafrænar leiðir og samskiptamiðla af ábyrgð, unnið í samræmi við reglur um ábyrga netnotkun og er meðvitaður um eigin siðferðislega ábyrgð |