Hæfnimarkmið í náttúrugreinum
Hæfniviðmið um verklag
Geta til aðgerða við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• greint hvernig þættir eins og tæknistig, þekking, kostnaður og grunnkerfi samfélagsins hafa áhrif á hvaða lausn viðfangsefna er valin hverju sinni, • greint stöðu mála í eigin umhverfi og aðdraganda þess, í framhaldi skipulagt þátttöku í aðgerðum sem fela í sér úrbætur • tekið þátt í og útskýrt reynslu sína og niðurstöðu af þátttöku í aðgerðum sem varða náttúru og samfélag, • tekið rökstudda afstöðu til málefna og komið með tillögur um hvernig megi bregðast við breytingum en um leið tekið mið af því að í framtíðinni er margt óvisst og flókið. |
Nýsköpun og hagnýting þekkingar við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert grein fyrir hvernig niðurstöður rannsókna hafa haft áhrif á tækni og atvinnulíf í nánasta umhverfi og samfélagi og hvernig þær hafa ekki haft áhrif, • tekið þátt í skipulagi og unnið eftir verk- og tímaáætlun hóps við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi, • dregið upp mynd af því hvernig menntun, þjálfun, starfsval og áætlanir um eigið líf tengjast breytingum á umhverfi og tækni. |
Gildi og hlutverk vísinda og tækni við lok 10. bekkjar |
Að nemnadi geti:
• metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað á skýran hátt, • beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins, • skýrt með dæmum hvernig náttúruvísindi, tækni, menning, heimsmynd mannsins og náttúran hafa áhrif hvert á annað, • unnið með samþætt viðfangsefni með vinnubrögðum náttúrugreina og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdum náttúru, umhverfi, samfélagi og tækni. |
Vinnubrögð og færni við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• framkvæmt og útskýrt sérhannaðar eða eigin athuganir úti og inni, • lesið texta um náttúrufræði sér til gagns, umorðað hann og túlkað myndefni honum tengt, • aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum, • beitt vísindalegum vinnubrögðum, s.s. tilraunum og athugunum á gagnrýninn hátt, við öflun upplýsinga innan náttúruvísinda, • kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur, • gefið skýringar á og rökrætt valið efni úr athugunum og heimildum, • dregið ályktanir af gögnum og gefið ólíkar skýringar með því að nota ólík sjónarhorn. |
Ábyrgð á umhverfinu við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið eftir og rætt atriði í umhverfinu sínu, gert grein fyrir áhrifum þeirra á lífsgæði og náttúru, sýnt umhverfinu umhyggju og rökrætt eigin skoðun á því, • skoðað og skráð atburði eða fyrirbæri sem snerta samspil manns og umhverfis, í framhaldi tekið virkan þátt í gagnrýnni umfjöllun um málið og gert tillögur um aðgerðir til bóta, • sýnt fram á getu til að vinna að umbótum í eigin sveitarfélagi eða í frjálsum félagasamtökum, • rætt af skilningi eigin lífssýn og ábyrgð innan samfélags og tekið dæmi úr eigin lífi, • tekið þátt í að skoða og skilgreina stöðu umhverfismála á heimsvísu og rætt um markmið til umbóta. |
Hæfniviðmið um viðfangsefni
Að búa á jörðinni við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• skipulagt, framkvæmt og gert grein fyrir athugunum á námsþáttum að eigin vali er varða búsetu mannsins á jörðinni, • útskýrt og rætt ástæður náttúruverndar, • útskýrt breytingar á landnotkun og tengsl þeirra við jarðvegseyðingu og orkuframleiðslu, • útskýrt árstíðabundið veðurlag og loftslagsbreytingar, ástæður og afleiðingar, • gert grein fyrir stöðu jarðar í himingeimnum og áhrifum hennar á líf á jörðu, • rætt um notkun gervihnatta í samskiptum manna, rannsóknir og álitamál þeim tengdum. • útskýrt árstíðabundið veðurlag og loftslagsbreytingar, ástæður og afleiðingar, • gert grein fyrir stöðu jarðar í himingeimnum og áhrifum hennar á líf á jörðu, • rætt um notkun gervihnatta í samskiptum manna, rannsóknir og álitamál þeim tengdum. |
Lífsskilyrði manna við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• útskýrt hlutverk helstu líffæra og líffærakerfa mannslíkamans, gerðir frumna, líffæri þeirra og starfsemi, • útskýrt hvernig einstaklingur getur stuðlað að eigin velferð með ábyrgri neyslu og hegðun, • útskýrt hvað einkennir lífsskilyrði manna og hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin heilsu, • útskýrt hvernig fóstur verður til og þroskast, hvað felst í ábyrgri kynhegðun og rætt eigin ábyrgð á líkamlegu og andlegu heilbrigði, bæði sín og annarra, • rökrætt umhverfismál frá ólíkum sjónarhornum, er tengjast vatni, vatnsnotkun og sjó, • lýst hringrás efna og flæði orku í náttúrunni, útskýrt ljóstillífun og bruna og gildi þeirra. |
Náttúra Íslands við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert grein fyrir eigin athugunum á lífverum, hegðun þeirra og búsvæðum, • útskýrt flokka lífvera eftir skyldleika, ein- og fjölfrumunga, að erfðir ráðast af genum og hvernig íslenskar lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu, • útskýrt þarfir ólíkra lífvera í ólíkum vistkerfum, • útskýrt hugmyndir um náttúruval, hæfni, aðlögun og arfbundinn breytileika, • lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku á Íslandi, • tekið dæmi af og útskýrt forvarnir, sem eru skipulagðar vegna náttúruhamfara. |
Heilbrigði umhverfisins við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun, • rætt á gagnrýninn hátt framleiðslu, flutning og förgun efna, • sagt fyrir um þjónustu sem náttúrulegir ferlar veita, • nýtt frumeindakenninguna og lotukerfið til að útskýra eiginleika efna, efnabreytingar og hamskipti, • útskýrt krafta sem verka í daglegu lífi manna. |
Samspil vísinda, tækni og þróunar í samfélaginu við lok 10. bekkjar |
Að nemandi geti:
• fjallað á gagnrýninn hátt um aukefni í mat og aðferðir til að auka geymsluþol matvæla, • útskýrt forsendur vistvænnar hönnunar, • útskýrt mismunandi tegundir geislunar og hvernig þær eru notaðar í fjarskiptum og lækningum, • útskýrt einfaldar rafrásir og tengsl rafmagns og segulmagns, • skýrt tengsl mannfjöldaþróunar við framleiðslu og dreifingu matvæla og þátt líftækninnar í þeim tengslum. |
Veturinn 2016-2017
Uppfært í ágúst 2016 |
Markmið: Að nemendur:
-dregið upp mynd af því hvernig menntun, þjálfun, starfsval og áætlanir um eigið líf tengjast breytingum á umhverfi og tækni. -beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins -beitt vísindalegum vinnubrögðum, s.s. tilraunum og athugunum á gagnrýninn hátt, við öflun upplýsinga innan náttúruvísinda -lesið texta um náttúrufræði sér til gagns, umorðað hann og túlkað myndefni honum tengt -aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum -kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur -skoðað og skráð atburði eða fyrirbæri sem snerta samspil manns og umhverfis, í framhaldi tekið virkan þátt í gagnrýnni umfjöllun um málið og gert tillögur um aðgerðir til bóta -rætt af skilningi eigin lífssýn og ábyrgð innan samfélags og tekið dæmi úr eigin lífi -útskýrt breytingar á landnotkun og tengsl þeirra við jarðvegseyðingu og orkuframleiðslu -lýst ólíkum leiðum við framleiðslu, dreifingu og nýtingu orku á Íslandi -tekið dæmi af og útskýrt forvarnir, sem eru skipulagðar vegna náttúruhamfara -nýtt frumeindakenninguna og lotukerfið til að útskýra eiginleika efna efnabreytingar og hamskipti -útskýrt krafta sem verka í daglegu lífi manna -fjallað á gagnrýninn hátt um aukefni í mat og aðferðir til að auka geymsluþol matvæla -útskýrt forsendur vistvænnar hönnunar -útskýrt mismunandi tegundir geislunar og hvernig þær eru notaðar í fjarskiptum og lækningum -útskýrt einfaldar rafrásir og tengsl rafmagns og segulmagns -skýrt tengsl mannfjöldaþróunar við framleiðslu og dreifingu matvæla og þátt líftækninnar í þeim tengslum |
Veturinn 2017-2018
Uppfært í ágúst 2016 |
Markmið: Að nemendur:
-greint stöðu mála í eigin umhverfi og aðdraganda þess, í framhaldi skipulagt þátttöku í aðgerðum sem fela í sér úrbætur -tekið rökstudda afstöðu til málefna og komið með tillögur um hvernig megi bregðast við breytingum en um leið tekið mið af því að í framtíðinni er margt óvisst og flókið -tekið þátt í skipulagi og unnið eftir verk- og tímaáætlun hóps við að hanna umhverfi, hlut eða kerfi -unnið með samþætt viðfangsefni með vinnubrögðum náttúrugreina og tekið gagnrýna afstöðu til siðferðilegra þátta tengdum náttúru, umhverfi, samfélagi og tækni -beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins -lesið texta um náttúrufræði sér til gagns, umorðað hann og túlkað myndefni honum tengt -aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum -kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur -tekið eftir og rætt atriði í umhverfinu sínu, gert grein fyrir áhrifum þeirra á lífsgæði og náttúru, sýnt umhverfinu umhyggju og rökrætt eigin skoðun á því -sýnt fram á getu til að vinna að umbótum í eigin sveitarfélagi eða í frjálsum félagasamtökum -tekið þátt í að skoða og skilgreina stöðu umhverfismála á heimsvísu og rætt um markmið til umbóta -skipulagt, framkvæmt og gert grein fyrir athugunum á námsþáttum að eigin vali er varða búsetu mannsins á jörðinni -útskýrt og rætt ástæður náttúruverndar -útskýrt árstíðabundið veðurlag og loftslagsbreytingar, ástæður og afleiðingar -gert grein fyrir stöðu jarðar í himingeimnum og áhrifum hennar á líf á jörðu -rætt um notkun gervihnatta í samskiptum manna, rannsóknir og álitamál þeim tengdum -rökrætt umhverfismál frá ólíkum sjónarhornum, er tengjast vatni, vatnsnotkun og sjó -lýst hringrás efna og flæði orku í náttúrunni, útskýrt ljóstillífun og bruna og gildi þeirra -útskýrt þarfir ólíkra lífvera í ólíkum vistkerfum -útskýrt hugmyndir um náttúruval, hæfni, aðlögun og arfbundinn breytileika -rætt á gagnrýninn hátt framleiðslu, flutning og förgun efna |
Veturinn 2018-2019
Uppfært í ágúst 2016 |
Markmið: Að nemendur: -greint hvernig þættir eins og tæknistig, þekking, kostnaður og grunnkerfi samfélagsins hafa áhrif á hvaða lausn viðfangsefna er valin hverju sinni -tekið þátt í og útskýrt reynslu sína og niðurstöðu af þátttöku í aðgerðum sem varða náttúru og samfélag -gert grein fyrir hvernig niðurstöður rannsókna hafa haft áhrif á tækni og atvinnulíf í nánasta umhverfi og samfélagi og hvernig þær hafa ekki haft áhrif -metið gildi þess að upplýsingum um vísinda- og tækniþróun sé miðlað á skýran hátt -skýrt með dæmum hvernig náttúruvísindi, tækni, menning, heimsmynd mannsins og náttúran hafa áhrif hvert á annað -beitt algengustu hugtökum og heitum í náttúrugreinum unglingastigsins -framkvæmt og útskýrt sérhannaðar eða eigin athuganir úti og inni -gefið skýringar á og rökrætt valið efni úr athugunum og heimildum -dregið ályktanir af gögnum og gefið ólíkar skýringar með því að nota ólík sjónarhorn -lesið texta um náttúrufræði sér til gagns, umorðað hann og túlkað myndefni honum tengt -aflað sér upplýsinga um náttúruvísindi úr heimildum á íslensku og erlendum málum -kannað áreiðanleika heimilda með því að nota hand- og fræðibækur, Netið og aðrar upplýsingaveitur -útskýrt hlutverk helstu líffæra og líffærakerfa mannslíkamans, gerðir frumna, líffæri þeirra og starfsemi -útskýrt hvernig einstaklingur getur stuðlað að eigin velferð með ábyrgri neyslu og hegðun -útskýrt hvað einkennir lífsskilyrði manna og hvað felst í því að taka ábyrgð á eigin heilsu. -útskýrt hvernig fóstur verður til og þroskast, hvað felst í ábyrgri kynhegðun og rætt eigin ábyrgð á líkamlegu og andlegu heilbrigði, bæði sín og annarra -gert grein fyrir eigin athugunum á lífverum, hegðun þeirra og búsvæðum -útskýrt flokka lífvera eftir skyldleika, ein- og fjölfrumunga, að erfðir ráðast af genum og hvernig íslenskar lífverur hafa aðlagast umhverfi sínu -gert grein fyrir verndun og nýtingu náttúruauðlinda í tengslum við sjálfbæra þróun -sagt fyrir um þjónustu sem náttúrulegir ferlar veita |