Námsframvinda í verkgreinum á efsta stigi
Áætluð árleg námsframvinda í verkgreinum (valgreinum) með markmiðum, námsefni, heimanámi og kennslutilhögun fyrir 8. - 10. námsár skólans.
Áttunda, níunda og tíunda námsár
Uppfært í september 2021 |
T e x t í l m e n n t
Markmið: Nemandi geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar og geti beitt til þess einföldum áhöldum. Nemandi læri hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu og geti unnið eftir leiðbeiningum kennara. Nemandi geti nýtt sér handbækur og unnið eftir skriflegum leiðbeiningum. Nemandi þrói hugmynd að hlut og útfæri skreytingar. Nemandi skoði og meti eigin verk og annarra út frá fagurfræði og rökstyðji matið. Námsefni: Uppskriftir fyrir unglingastig ásamt ýmsum leiðbeiningum og uppskriftum frá kennara. Námsefni: Nálar, heklunálar, prjónar, garn, saumavél, tau, ull, rennilásar, snið, litir og margt annað fleira þessu tengt. Kennslutilhögun: Nemendur velja sér viðfangsefni að vild og fá aðstoð við að vinna þau. Fjórar kennslustundir á viku, einn þriðja af skólaárinu. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Við mat á verkefnum nemenda er tekið tillit til þátta eins og framfara, sjálfstæðis, frumkvæðis og samstarfshæfni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. H e i m i l i s f r æ ð i Markmið: Nemandi á að geta notað einföld áhöld og tæki og vita hvað ber að varast við notkun þeirra. Nemandi temji sér að vinna í sátt og samlyndi. Nemandi temji sér hreinlæti í verki og beri ábyrgð á frágangi eftir sig. Nemandi fái þjálfun í að fara eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum. Nemandi geri sér grein fyrir að góð næring er undirstaða góðrar heilsu. Kennslutilhögun: Nemendum er skipt í hópa og hver hópur fær skilgreint verkefni, oft skriflegt í formi ákveðinnar uppskriftar eða munnlegrar sem útheimtir leit í námsgögnum. Mikil áhersla er lögð á samvinnu nemenda innan hóps. Bókleg og verkleg verkefni. Fjórar kennslustundir á viku, einn þriðja af skólaárinu. Nánari uppfærslur má finna á mentor. Heimanám: Ekkert Námsmat: Námsmat verður byggt á ástundun og hegðun í tímum, vinnubrögðum og vandvirkni. Námsmat fer fram jafnt og þétt allan veturinn og flokkast því undir símat sem síðan er hluti af leiðsagnarmati. Tekið er tillit til sjálfsmats nemenda. Þá eru einnig verkefni og vinnubækur nemenda metnar. |