Listgreinar hæfniviðmið
Dans við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• hreyft sig frjálst og í takt við tónlist í samræmi við hreyfigetu eigin líkama, • dansað einföld hreyfimynstur og notað þau í paradönsum, barnadönsum og einföldum þjóðdönsum, • tekið þátt í skapandi dansferli með jafningjum undir leiðsögn kennara, • tengt saman hreyfingu og tónlist í dansi og virt samskiptareglur, • tekið tillit til jafningja í samstarfi, • hlustað á hugmyndir þeirra og lagt fram eigin, • rætt um hreyfingu í takt við tónlist út frá persónulegri upplifun. |
Leiklist við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið virkan þátt í leikrænu ferli í hópi og sýnt skólasystkinum tillitssemi, • sett saman einfalda leikþætti í samstarfi við jafningja og kennara með skýru upphafi, miðju og endi, • notað einfalda leikmuni og sviðsbúnað til að styðja við sköpun sína, • lært stuttan texta og flutt hann á skýran hátt fyrir áhorfendur, • sett sig í spor annarra í leikrænu ferli/hlutverkaleik og tekið þátt í viðtali sem ákveðin persóna, • beitt einföldu formi leiklistar, • sýnt viðeigandi hegðun sem áhorfandi í leikhúsi eða á leiklistarviðburðum í skólanum, • bent á leikið efni og ólík hlutverk þess í mismunandi samhengi, • lýst leiknu efni á sviði og/ eða í myndmiðlum út frá söguþræði, innihaldi og persónum í verkinu. |
Sjónlist við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar, • skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum, • tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt, • útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki, • unnið út frá kveikju við eigin listsköpun, • þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni, • fjallað um eigin verk og annarra, • þekkt og gert grein fyrir völdum verkum listamanna. Lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og lýst þeim aðferðum sem beitt var við sköpun verksins, • greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka, • greint á einfaldan hátt áhrif myndmáls í nærumhverfi hans, • skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar. |
Tónmennt við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• þekkt hljóðfæri og hljóðblæ í tónsköpun og hlustun, • greint ólíkar raddir og beitt rödd sinni sem hljóðfæri í samsöng og spuna, • leikið einfalda rytma eða þrástef á slagverkshljóðfæri og önnur skólahljóðfæri, • tekið þátt í að skapa og flytja einfalt tónverk/ hljóðverk og skráð það á einfaldan hátt, • greint einföld stílbrigði í tónlist (t.d. íslenskt þjóðlög), • rætt um eigin tónlist og annarra út frá smekk og upplifun. |