Hæfnimarkmið í náttúrugreinum
Hæfniviðmið um verklag
Geta til aðgerða við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• útskýrt hvernig tækni hefur áhrif á lífsgæði íbúa og umhverfi þeirra, • tekið frumkvæði við öflun upplýsinga til að skoða tiltekið málefni frá ýmsum sjónarhornum, • sýnt virkni og látið sig varða nánasta umhverfi og lífsskilyrði lífvera í því, • greint á milli ólíkra sjónarmiða sem varða málefni daglegs lífs. |
Nýsköpun og hagnýting þekkingar við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• komið auga á þarfir og vandamál í umhverfi sínu, • unnið eftir verkferli nýsköpunar, þ.e. leitað að þörfum í daglegu umhverfi fólks, fundið lausn, hannað afurð, • bent á störf sem krefjast sérþekkingar. |
Gildi og hlutverk vísinda og tækni við lok 4. bekkjar |
Að nemnadi geti:
• í máli og myndum miðlað hugmyndum sem tengjast náttúruvísindum, • notað einföld hugtök úr náttúruvísindum í textaskrifum, • útskýrt hvernig tækni nýtist í daglegu lífi þeirra, • gert sér grein fyrir hvernig maðurinn er hluti af náttúrunni og lífsafkoma hans byggist á samspilinu við hana. |
Vinnubrögð og færni við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sagt frá og framkvæmt með hversdagslegum hlutum einfaldar athuganir úti og inni, • tekið þátt í vali á náttúrufræðilegum verkefnum og kynningu á niðurstöðum, • aflað sér upplýsinga er varða náttúruna, • skráð atburði og athuganir, s.s. með ljósmyndum, teikningum, eigin orðum og sagt frá þeim, • notað ólíkar heimildir við öflun upplýsinga, • útskýrt valda atburði og hugmyndir á fjölbreyttan hátt, • hlustað á og rætt hugmyndir annarra. |
Ábyrgð á umhverfinu við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið eftir og rætt atriði í umhverfinu sínu, sýnt félögum og náttúru alúð, • skoðað og skráð dæmi um áhrif af gjörðum mannsins á náttúru og manngert umhverfi í heimabyggð, • nýtt reynslu og hæfni í námi og daglegu lífi, einn og með öðrum, • rætt eigin lífssýn og gildi, gert sér grein fyrir samspili náttúru og manns, • tekið þátt í að skoða, greina og bæta eigið |
Hæfniviðmið um viðfangsefni
Að búa á jörðinni við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• tekið þátt í og sagt frá einföldum athugunum á jarðvegi, veðrun og rofi, • sagt frá hvernig Ísland myndast og tekur breytingum, • lýst landnotkun í heimabyggð, • fylgst með og skráð upplýsingar um veður í heimabyggð, • lýst breytingum á náttúru Íslands eftir árstíðum og áhrifum þeirra á lífsskilyrði fólks, • notað gervihnatta- og loftmyndir af yfirborði jarðar til að lýsa heimabyggð. |
Lífsskilyrði manna við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• útskýrt á einfaldan hátt byggingu og starfsemi mannslíkamans, • útskýrt mikilvægi hreyfingar, hreinlætis, hollrar fæðu og svefns, • bent á skaðleg efni og hvernig ýmsir sjúkdómar og sýklar eru smitandi, • útskýrt á einfaldan hátt hvernig barn verður til og þekkir einkastaði líkamans, • rætt fjölbreytni í nýtingu vatns á heimilum og í umhverfinu, • lýst skynjun sinni og upplifun af breytingum á hljóði, ljósi og hitastigi og áhrifum sólarljóss á umhverfi, hitastig og líkamann og tengt hitastig við daglegt líf. |
Náttúra Íslands við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• sagt frá eigin upplifun á náttúrunni og skoðun á lífveru í náttúrulegu umhverfi, • útskýrt einkenni lifandi vera, skýrt með dæmum lífsskilyrði lífvera og tengsl við umhverfi, • lýst algengustu lífverum í nánasta umhverfi sínu, • útskýrt fæðukeðjur og rakið fæðu til frumframleiðenda, • greint á milli algengustu orkugjafa á Íslandi, • sagt frá náttúruhamförum sem búast má við á Íslandi og hvar þær verða. |
Heilbrigði umhverfisins við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• fjallað um samspil manns og náttúru, • flokkað úrgang, • gert grein fyrir þjónustu, sem náttúrulegir ferlar veita, • sett í samhengi mismunandi ástand efna og eiginleika þeirra, • rætt krafta sem koma við sögu í daglegu lífi manna. |
Samspil vísinda, tækni og þróunar í samfélaginu við lok 4. bekkjar |
Að nemandi geti:
• flokkað gerviefni og náttúruleg efni eftir tilurð þeirra, • rætt hvernig uppfinningar hafa gert líf fólks auðveldara eða erfiðara, á heimilum og í ólíkum atvinnugreinum, • lýst eiginleikum hljóðs og ljóss og ýmsum fyrirbærum með tilliti til hljóðs og lita, • sagt frá þróun algengra rafmagnstækja og áhrifum segla, • gert grein fyrir hvernig holl fæða er samsett úr öllum flokkum fæðuhringsins og mikilvægi við geymsluaðferðir. |