Námsframvinda í stærðfræði á efsta stigi
Áætluð árleg námsframvinda í stærðfræði með markmiðum, viðfangsefnum og kennslutilhögun fyrir 8. - 10. námsár skólans
Áttunda námsár
Uppfært í september 2021 |
Námsefni: Skali 1A og 1B (nemendabók og æfingahefti), Átta-tíu 1 og 2, Almenn stærðfræði I, tölvuforrit og efni af netinu, hugtök í stærðfræði – handbók og ítar- og aukaefni frá kennara.
Kennslutilhögun: Loturnar eru 11 talsins og vinna nemendur sjálfstætt. Hver nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði. Ef unnið er jafnt og þétt yfir vikuna er lítil heimavinna. Nemendur taka svo próf í lot hverrar lotu, ef nemendur ná ekki yfir 8 í lotuprófum þurfa þeir að taka prófin aftur. Eftir hverja bók (1A og 1B) er lokapróf en ef nemandi nær yfir 8 í meðaleinkunn úr lotuprófum þarf hann ekki að taka lokapróf. Námsefnið er bæði viðamikið og þungt og mikilvægt er að vinna jafnt og þétt alla vikuna og allt skólaárið. Áhersla er á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og beri ábyrgð á eigin námi. Nemendur skulu ávallt vera með vasareikni. Heimanám: Nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði og gæti því þurft að vinna að henni heima. Námsmat: Leiðsagnarmat; vinnueinkunn 10%, hugtaka og formúlubók 20%, kaflapróf og sjálfspróf 50%-70% og lokapróf 0%-20% Kennsluáætlun og skiladaga er að finna inn á Mentor! |
Níunda námsár
Uppfært í september 2021 |
Námsefni: Skali 2A og 2B, Almenn stærðfræði I, II og III, tölvuforrit og efni af netinu, hugtök í stærðfræði – handbók og ítar- og aukaefni frá kennara.
Kennslutilhögun: Loturnar eru 9 talsins og vinna nemendur sjálfstætt. Hver nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði. Ef unnið er jafnt og þétt yfir vikuna er lítil heimavinna. Nemendur taka svo próf í lok hverrar lotu, ef nemendur ná ekki yfir 8 í lotuprófum þurfa þeir að taka prófin aftur. Efitr hverja bók (2A og 2B) er lokapróf en ef nemandi nær yfir 8 í meðaleinkunn úr lotuprófum þarf hann ekki að taka lokapróf. Námsefnið er bæði viðamikið og þungt og mikilvægt er að vinna jafnt og þétt alla vikuna og allt skólaárið. Áhersla er á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og beri ábyrgð á eigin námi. Nemendur skulu ávallt vera með vasareikni. Heimanám: Nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði og gæti því þurft að vinna að henni heima. Námsmat: Leiðsagnarmat; vinnueinkunn 10%, hugtaka og formúlubók 20%, kaflapróf og sjálfspróf 50%-70% og lokapróf 0%-20% Kennsluáætlun og skiladaga er að finna inn á Mentor! |
Tíunda námsár
Uppfært í september 2021 |
Námsefni: Skali 3A og 3B, Almenn stærðfræði II og III, tölvuforrit og efni af netinu, hugtök í stærðfræði – handbók og ítar- og aukaefni frá kennara.
Kennslutilhögun: Loturnar eru 10 talsins og vinna nemendur sjálfstætt. Hver nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði. Ef unnið er jafnt og þétt yfir vikuna er lítil heimavinna. Nemendur taka svo próf í lok hverrar lotu, ef nemendur ná ekki yfir 8 í lotuprófum þurfa þeir að taka prófin aftur. Eftir hverja bók (3A og 3B) er lokapróf en ef nemandi nær yfir 8 í meðaleinkunn úr lotuprófum þarf hann ekki að taka lokapróf. Námsefnið er bæði viðamikið og þungt og mikilvægt er að vinna jafnt og þétt alla vikuna og allt skólaárið. Áhersla er á að nemendur séu sjálfstæðir í vinnubrögðum og beri ábyrgð á eigin námi. Nemendur skulu ávallt vera með vasareikni. Heimanám: Nemandi ber ábyrgð á að halda áætlun í stærðfræði og gæti því þurft að vinna að henni heima. Námsmat: Leiðsagnarmat; vinnueinkunn 10%, hugtaka og formúlubók 20%, kaflapróf og sjálfspróf 50%-70% og lokapróf 0%-20% Kennsluáætlun og skiladaga er að finna inn á Mentor! |