Lykilhæfni
Lykilhæfni Auðarskóla
|
Menntagildi lykilhæfni
Grunnþættir í menntun skulu ásamt áhersluþáttum grunnskólalaga vera leiðarljós í almennri menntun og starfsháttum grunnskóla. Jafnframt er rætt um mikilvægi þess að grunnskólinn skapi vettvang til að þroska með nemendum hæfni í anda grunnþáttanna sem búa þá undir þátttöku í lýðræðissamfélagi.
Lykilhæfni er sú hæfni sem snýr að nemandanum sjálfum og er ætlað að stuðla að alhliða þroska hans. Lykilhæfni tengist öllum námssviðum. Hún snýr að hæfni í tjáningu og miðlun, skapandi og gagnrýninni hugsun, sjálfstæði og samvinnu, nýtingu miðla og upplýsinga og ábyrgð og mat á eigin námi. Menntagildi lykilhæfni felst meðal annars í því að þroska sjálfsvitund og samskiptahæfni nemenda og búa þá undir virka þátttöku í lýðræðissamfélagi og getu til að nýta sér styrkleika sína til áframhaldandi náms og starfsþróunar þegar þar að kemur. Með því að Mennta- og menningarmálaráðuneyti skilgreina hæfniviðmið í lykilhæfni í öllu námi frá upphafi skólagöngu er lagður grunnur að alhliða þroska nemenda. Hæfni til tjáningar, gagnrýninnar hugsunar, hæfni til samstarfs við aðra, sjálfsþekkingar, ábyrgðar og sjálfstæðis, frumkvæðis og skapandi hugsunar eru meðal þeirra þátta sem leggja grunn að heildstæðri almennri menntun alla ævi. |