Hæfniviðmið í verkgreinum á efsta stigi
Heimilisfræði við lok 10. bekkjar |
Matur og lífshættir
Að nemandi geti: • tjáð sig um heilbrigða lífshætti, tengsl þeirra við heilsufar og sett í samhengi við ábyrgð hvers og eins á eigin heilsufari, • greint aðalatriði næringarfræðinnar og útskýrt tengsl næringarefna, hráefna og matreiðslu, • farið eftir leiðbeiningum um hreinlæti og þrif tengdu heimilishaldi og matreiðslu, • greint helstu þætti sem hafa áhrif á útgjöld við heimilishald og geti tekið ábyrgð á eigin útgjöldum og skuldbindingum og þekkt rétt sinn og skyldur sem neytandi. Matur og vinnubrögð Að nemandi geti: • skipulagt og matreitt fjölbreyttar, hollar og vel samsettar máltíðir úr algengu og nýstárlegu hráefni með áherslu á hagkvæmni og nýtni, • beitt helstu matreiðsluaðferðum og notað til þess ýmis mæli- og eldhúsáhöld, • greint frá viðbrögðum við slysum á heimilum, • nýtt margvíslega miðla til að afla upplýsinga á gagnrýninn hátt um næringafræði, neytendamál, hagkvæmni í innkaupum, aukefni, geymslu og matreiðslu. Matur og umhverfi Að nemandi geti: • sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í vítt samhengi við lýðræði og jafnrétti, hreinleika og eiginleika sem taldir eru bæta heilsu fólks og stuðla að sjálfbærri þróun, • rætt þátt auglýsinga og upplýsinga um merkingar, verð og gæði neysluvara í tengslum við neytendavernd og tjáð sig um gæði, geymslu og aukefni í matvælum. Matur og menning Að nemandi geti: • sagt frá íslenskri og erlendri matarmenningu og matreitt ýmsa þjóðarrétti |
Hönnun og smíði við lok 10. bekkjar |
Handverk
Að nemandi geti: • valið aðferðir, efni og verkfæri við hæfi og sýnt rétta og ábyrga notkun verkfæra, • sagt frá mikilvægi verkþekkingar í nútíma samfélagi. Hönnun og tækni Að nemandi geti: • útskýrt hugmyndir sínar fríhendis- og með grunnteikningu, • unnið sjálfstætt eftir verkáætlun og vinnuteikningu, útbúið efnislista og reiknað kostnað, • framkvæmt flóknari samsetningar, s.s. samlímingu, töppun og skrúfun, • hannað verkefni út frá efni, fagurfræði, tækni, umhverfi, notkun og endingu, • sagt frá hvernig tækni er nýtt í atvinnulífinu, • gert grein fyrir áhrifum nýsköpunar á umhverfi sitt og samfélag. Umhverfi Að nemandi geti: • greint vistvæn efni frá óvistvænum og haft sjálfbærni að leiðarljósi við vinnu sína, s.s. við efnisval, • gert sér grein fyrir hvort og hvernig hægt er að endurnýja ýmsa hluti til að lengja líftíma þeirra, • beitt viðeigandi vinnustellingum og notað réttan hlífðarbúnað og fjallað um vinnuvernd og hvers vegna reglur þar að lútandi eru settar. |
Textílmennt við lok 10. bekkjar |
Hanverk, aðferðir og tækni
Að nemandi geti: • beitt fjölbreyttum aðferðum og áhöldum greinarinnar við formun textílafurða, • rökstutt eigið val á textílefni eftir viðfangsefni og efnisfræði, • unnið með snið og uppskriftir, tekið mál, áætlað stærðir og efnisþörf. Sköpun, hönnun og útfærsla Að nemandi geti: • beitt skapandi og gagnrýnni hugsun í hönnun og textílvinnu, • skreytt textílafurð á skapandi og persónulegan hátt, • lagt mat á eigin vinnubrögð, sagt frá góðu handbragði, formi og hönnun og notað til þess viðeigandi hugtök, • nýtt margvíslega miðla til að afla upplýsinga á gagnrýninn hátt um efni sem tengist textílsögu, hönnun og iðnaði. Menning og umhverfi Að nemandi geti: • útskýrt tjáningarmáta og tákn textíla og tísku út frá mismunandi stíl, áferð og efniskennd, í tengslum við sérkenni íslenskrar textílvinnu, handverks, textílsögu og menningararfs, • fjallað um helstu tákn og merkingar vefjarefna, • sagt frá textíliðnaði og starfsgreinum tengdum fatagerð og textílhönnun, • sagt frá vinnslu textílefna við mismunandi aðstæður og sett í samhengi við sjálfbærni og umhverfisvernd. |